þriðjudagur, október 04, 2005

Ferðast til Wisconsin

Þann 22. sept sl. var komið að ferðinni til Wisconsin. Erindið var að sækja málstofu hjá nýja leiðbeinandanum mínum í doktorsnáminu. Ég fékk far hjá frúnni út á völl og tók vélina til Minneapolis. Hafði upgrade-að mig á Saga Class og hafði það gott í sæti 4F með autt sæti við hliðina á mér. Sat þar sem sóley prúð í varpa og horfði á kvikmyndir og þætti og var þakklátur fyrir að það skyldi vera ný útgáfa frá því sem var þegar við vorum á leiðinni til og frá San Fransisco. Það var svolítið skondið að flugfreyjan kom til mín og bauð mér drykk og tjáði mér jafnframt að ef atferlið hinum megin við ganginn ylli mér hugarangri gæti hún gert eitthvað í málinu. Ég hafði hreinlega ekki tekið eftir því en amerísk hjón um fertugt voru í sleik í sætunum hinum megin við mig, enda heyrnartólin með noice reduction og myndin spennandi. Þar sem þetta var rúmlega sex tíma flug entist kossinn ekki lengi hjá þeim skötuhjúum og konan þreytt af súrefnisleysinu og lagði sig.

Í Minneapolis tók við leit að bílaleigunni, hraðbanka og sjoppu með gosi. Allt þetta fannst og burgundy litaður Taurusinn var með Never-Lost sem vissi hvar Muscoda væri, þannig að ég lagði af stað. Auðvitað náði ég ekki að fylgja tækinu og var allt í einu kominn frá bleiku línunni svo röddin í tækinu sagði kurteislega “Please proceed to the highlighted route”, “When possible, please make a U-turn”. Það var tekin u-beygja og rétt hægri beygja tekin, en leiðin sem tækið valdi var engan veginn í samræmi við útprentuðu leiðina sem ég var með úr Map-Pointinu. Nú tók við rúmlega fjögurra tíma akstur þar sem var myrkur og ég reyndi að halda mig sem næst 80 mílunum. Það sem var verra var að ég hóf aksturinn eftir miðnætti á íslenskum tíma sem þýddi að ég var að keyra alla nóttina þótt það væri kvöld í Ameríku. Í restina var ég að keyra í gegnum einhverja bæi og fór hægar. Loks kom ég að skiltinu Muscoda og þegar kl. var 23:40 var ég kominn á Gingers Drive og sá lítið pappaspjald við götuna sem á stóð “Joynt” og Never-Lostið sagði blíðlega “You have reached your destination”.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home