Málstofan mikla
Við vorum því fjögur sem vorum að kynna auk Pat en þarna kom líka prófessor frá Madisson sem heitir Neil og lagði heilmikið til málanna í kynningunum. Þar sem Antonia hafði forfallast var dagskráin aðeins breytt og byrjaði Gunnar á sínum tveimur tímum fyrir hádegið. Hann var að fjalla um áhrif menningar á stjórnunarstíla. Gunnar starfar hjá Telenor og þeir eru með 12 alþjóðlegar starfseiningar og því fróðlegt fyrir fyrirtækið að skynja hvaða stjórnunarstíl á að viðhafa miðað við gefna menningu þar sem á að hefja starfsemi. Þetta efni var mér ekki framandi því ég tók Intercultural Competence í Árósum og svo var þetta hluti af Alþjóðaviðskiptunum sem ég er búinn að kenna síðustu fimm árin í Hí. Gat ég þess vegna lagt orð í belg og sýnst hafa vit á hlutunum !!!
Að loknum hádegisverði tók við kynningin mín. Ég hafði í algjörri panik sett saman átján glærur um efni sem ég kallaði “Finding a tribe – Resource type and strategic orientation”. Byggði ég þetta á þeim skeytum sem höfðu farið á milli okkar Pats frá fjórða september þar sem hann sagði mér heldur betur til syndanna og rústaði öllu sem ég hafði hafst að síðustu átján mánuði. Hann hafði bent mér á Miles og Snow frá 78 sem ættbálk (tribe) og hafði ég reynt að finna greinar á netinu sem ég gat notað til að tengja við auðlindarýnina (resource based view) og þá aðallega óáþreifanlegar auðlindir. Samtal okkar daginn áður rústaði líka þessari kynningu og sat ég eftir með sex glærur sem ég þurfi að teygja í tveggja tíma spjall. Það reyndi því vel á framsagnartæknina og byrjaði ég á því að hella poka af Djúpum í skál og kynna þeim íslenskt sælgæti. Næsta stunt var ekki síðra því ég var með glærur af gömlu gerðinni. Það var enginn skjávarpi, heldur myndvarpi af gömlu gerðinni sem hafði afar hátt. Þar sem ég sat við gluggann brá ég á það ráð að sleikja toppinn á hverri glæru og skella beint á gluggann þannig að allir sæu. Kallaði ég þessa uppfinningu mína, “The silent projector” og vakti þetta nokkra kátínu. En þetta var ekki nóg heldur þurfti ég líka að segja eitthvað. Ég rakti því sögu mína alla, þ.e. hvernig ég sá fyrir mér hvað þekkingarverðmæti eru og hvernig hagnýting þeirra eflir samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Sagði einnig hvernig þessi fræði ættu sér ekki nægilega stórt heimili í vísindaakademíunni og teldust því ekki sérstakur ættbálkur og því ekki tæk sem doktorsefni. Fór ég síðan yfir þá lausn sem við Pat höfðum unnið að deginum áður og hún rædd. Var ekki annað að heyra að þetta félli vel í kramið og Steve var strax áhugasamur, sem skipti máli fyrir framhaldið. Tókst mér að teygja þetta í einn og hálfan tíma sem mér þótti nokkuð gott.
Næst var Lisa grilluð í Mock Vivunni, en til skýringar er það allt í plati doktorsvörn. Ég varð vitni að annarri slíkri hjá Pat í Nittedal í desember sl. og var þá annar nemandi aðnjótandi sömu meðferðar. Það er afar mikilvægt, bæði að hafa séð og farið í gegnum slíkar æfingar, því það tryggir farsæla vörn þegar að alvörunni kemur. Það er ansi hart sótt að fólki í vörninni og eins gott að vera vel undirbúinn. Þá var Steve með stutt innlegg um pólitík í Háskólasamfélaginu, en umsókn hans um starf hjá Henley var hafnað á hallærislegan hátt. Sýndist sitt hverjum og Neil hafði lent í svipuðu í vikunni á undan svo það var nóg að tala um. Þá var málstofunni lokið og kokteiltíminn tekinn við. Við snæddum síðan hátíðarkvöldverð, skáluðum fyrir gestrisni þeirra hjóna og eldamennsku frúarinnar. Kom sér vel að ég hafði í bríaríi keypt mér koníakspela við ófyrirséðum kulda, því það var koníakslaust í kofanum og ekki vildi ég íslenska brennivínið sem ég gaf Pat við komuna.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home