Vinnufundur í Brussel
Vinnufundurinn góði hófst á þriðjudeginum kl. 9.30. Ég kannaðist ekki við sálu og sat þarna eins og álfur út úr hól. Einhver stórkommissarinn hóf fundinn og sagði að það væri sérvalið á fundinn, hér væru menn aðeins “by invitation only” svo það væri eins gott að eitthvað kæmi út úr þessu. Mér til mikils hryllings var þessi fundur ekki um verðmætamat á óáþreifanlegum eignum, eins og stóð í fundarboði, heldur var þetta um nýsköpun og stofnun einkaleyfa. Boooorrrriiiingg. Þarna voru fulltrúar margra einkaleyfastofa, áhættufjárfesta, Evrópu og alheimsstofnana á sviðinu. Mikið af ungu fólki á uppleið og eldra fólki á útleið! Þarna voru nokkur nöfn sem ég kannaðist við úr þekkingarverðmætaumræðunni og ljóst að þarna voru atvinnuröflarar á ferð því sérstaklega Houd frá UK, sem er formaður RICARDIS hópsins er einræðingur af bestu gerð og þurfti oftar en ekki að láta ljós sitt skína og duglegur að trana sér fram. Þannig urðu umræðurnar nokkurs konar einleikur fárra sem höfðu skoðun á ölllu. Allir vildu að kommissjónin gerði eitthvað en það mátti alls ekki setja neinar reglur. Síðan voru hin ýmsu stjórnsýsluapparöt að réttlæta tilvist sína. Ég hugsa að RANNÍS hefði verið góður kandídat í þá umræðu. Besti hlutinn var þegar dagskrá dagsins lauk hálftíma á undan áætlun.
Um kvöldið var farið út að borða á veitingastað sem hafði áður verið krambúð. Þarna voru margar mjóar millihæðir með borðum, en við vorum á efstu hæðinni. Ég var heppinn með sessunauta, Dana frá fjárfestingarapparati, Hollending frá hollensku einkaleyfaskrifstofunni og Búlgörsk stúlka frá þarlendum fjárfestingabanka. Við náðum að spjalla heilmikið og taka upp léttara hjal. Það var rækjukróketta í forrétt, önd í aðalrétt og ís á eftir svo það fór vel um mann. Það var haldið heim uppúr ellefu og ég feginn að komast í rúmið því ég hafði verið andvaka nóttina áður.
Miðvikudagurinn byrjaði kl. níu og var fjallað um verkfæri til að meta nýsköpun. Þetta var nokkuð áhugavert, sérstaklega hvernig Svissarar hjálpa sínum SMEum. Mættu okkar stjórnvöld taka þá til fyrirmyndar. Þessu lauk um tólf og ég settist í hádegismat með fulltrúa WIPO (world intellectual property office), ungri konu, sem á að vera með erindi í Ferrara í næsta mánuði, þar sem ég verð á ferðinni. Einnig var þarna breskur ráðgjafi og spjölluðum við lengi saman. Ég var samt feginn að komast frá þessu og komast í ferðagallann aftur og taka leigubíl á járnbrautastöðina því ég átti pantað far með Eurostar lestinni til London kl. Fjögur.
Lestarferðin var mjög róleg og ánægjuleg. Ég var á fyrsta farrými svo það var aðeins dúllað með mann, en aðallega náði ég að halla mér. Ég ætla ekki að líkja því saman að vera í lest eða í flugvélastandinu. Þannig var ég nokkuð vel settur þegar við komum á Waterloo stöðina. Það kom mér á óvart að ég náði Bakerloo strax, en hún fer á Paddington. Þar tók ég Heathrow Express og var kominn fyrir framan tékk-inn deskið hjá Air France 58 mínútum eftir að ég steig út úr Eurostar lestinni. Alltaf er Terminal 2 jafn hallærislegur og útslitinn. Það er varla að betri stofan hjá Air France standi undi nafni því það er ekkert þráðlaust net, og bara einn skjár til afnota fyrir alla gesti. Hallærislegast er þó að þurfa að fara fram á gang og krókaleiðir til að fara á salernið á ganginum við hlið 18, til hægri við “Multi faith praying room”, sem er ekki klósett þrátt fyrir nafnið J. Icelandair var á réttum tíma, sem ég man bara ekki að hafi gerst hjá kvöldvélinni fyrr. Þess vegna var ég kominn fyrir miðnættið heim. Var ég feginn að þessum spretti var lokið svo hægt væri að safna krafti fyrir næstu ferð viku síðar.


3 Comments:
Velkominn í heim blogg-nördanna.
Takk fyrir heimsóknina Ásta. Þau eru einföld sum systk(i)nin, þótt ekki sé svo í okkar ætt. Jón Marteinss hefði gefið 9,7 fyrir þetta :-) Man að nota "spellerinn" næst.
Takk fyrir kveðjuna Ásdís mín. Hlakka til að hitta ykkur um helgina.
Það er ekki að spyrja að því Helgi minn að bloggið þitt kemur mér á kortið. Þú ert hér með sjálfskipaður almannatengslafulltrúi minn í bloggheimum :-). Heyrumst!!!
ég les þig líka, gegnum almannatengslafulltrúann
Skrifa ummæli
<< Home