fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Connect 2006


Jæja, þá er lokið tveimur dögum í Edinborg á Connect 2006 fjárfestaráðstefnunni. Mér var bent á að fara á þessa ráðstefnu til að kynnast fjárfestum í Skotlandi og fyrirtækjum sem væru að leita að fjárfestum. Einnig var hálfur dagur sem kallaðist SEP Technology Forum, þar sem fimm framsögumenn fóru yfir hvernig ætti að meika það í flóknum heimi nútímans. Það var síðan hátíðarkvöldverður í gærkvöldi þar sem ég hitti á Maurice Smith, sem er stjórnarmaður í Intellectual Asset Centre, og lét hann breyta borðaröðum þannig að við sátum saman til borðs ásamt henni Löru Buckley sem er markaðsstjóri hjá SEP. Í dag hitti ég líka Polly Purvis frá Scotland IS, og ræddum við möguleika á samtarfi SUT við hennar samtök. Tók hún vel í þetta.

Varðandi fyrirtækin, sem kynntu sig á ráðstefnunni, þá var aðeins eitt sem ég hafði einhvern áhuga á, en það er fyrirtæki sem er með hugbúnað fyrir prófunarferla á lyfjum. Þetta er forrit sem heldur utan um feril og staðlar vinnubrögð og styttir tíma sem er mjög dýrmætur. Ég ætla að senda þeim póst og athuga með áhuga. Þetta var athyglisverð ráðstefna og lærdómsrík.

Annars tók ég lestina til Glasgow eftir hádegi og er kominn á Radisson. Ég fór á skrifstofuna hjá Stephen og fór yfir nokkur mál með honum og Darren. Nú er það bara að lesa yfir pappíra og senda pósta á fólkið sem ég hitti. Annars er það bara að skrifa og skrifa í ritgerðina góðu. Það gerist ekki að sjálfu sér.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home