Kominn til Glasgow
Var í afmælinu hans Hilmars Arnars frænda míns á kaffi Victor í gærkvöldi. Gaman hvað margir sáu sér fært að mæta. Gaman að spjalla við Helga frænda minn um bloggið hans og þráhyggju hans um ónefnd líkamshár.
Vaknaði snemma í morgun til að ná flugi til Glasgow þar sem nú á að hefjast skoðunarferð í boði Scottish Intellectual Asset Centre. Það verður farið til Edinborgar á morgun og síðan keyrt um Border Region og skoðuð fjögur fyrirtæki. Var annars í bænum í dag og keypti mér föt í M&S og geisladiska í HMW. Akkúrat það sem ég þurfti. Síðan fór ég út að borða með Oskari og Jóni Heiðari frá TM Software. Er núna að bíða eftir að welcome kokteill hefjist kl. 21. Vonandi verður þetta skemmtileg ferð.
Síðan er Stefán að fara til Vínarborgar á morgun að keppa í keilu. Hann verður hjá Önnu og gaman fyrir þau systkini að hittast og vonandi nær Stefán að koma tölvunni hennar Önnu í lag.
Svo er Sigrún að fara til Aþenu á miðvikudag. Aldeilis alþjóðleg fjölskylda þessa vikuna :-)


2 Comments:
Ég myndi ekki segja að þetta væri svo mikil þráhyggja, fremur heldur en lánleysi.
Lánleysi er ekki það sem mér kom til hugar. Þú ert svo vel skrifandi að mér finnst rétt að hæfileikunum sé beint í frjórri jarðveg :-)
Skrifa ummæli
<< Home