Scotsoft 2006

Ég fór á fimmtudagsmorgun til Glasgow til þess að halda áfram til Edinborgar á árlega ráðstefnu Skosku upplýsingatæknisamtakanna og síðan kvöldverð af sama tilefni.
Ég flaug til Glasgow og tók leigubíl á Radisson og síðan lest til Edinborgar. Ég var tímanlega og gekk því frá lestarstöðinni að ráðstefnustaðnum. Ég var svo heppinn að finna búð með hlaupavörum og keypti mér hlaupajakka, peysu og svo eina sem ég gaf Sigrúnu. Það er gott að vita af svona búð þar sem eitthvað er til.
Forum-ið um daginn var mjög áhugavert. Það voru þrír masterclasses í boði og valdi ég innovation og voru þarna þrír fyrirlesara frá stórum fyrirtækjum sem hafa eitthvað um það að segja hvernig framtíðin verður í mínum bransa.
Ég hitti Polly Purvis sem er framkvæmdastjóri ScotlandIS, og hún kynnti mig fyrir nokkrum mönnum sem eru að fjárfesta í iðnaðinum og líka að vinna að því að búa til tækifæri fyrir félagsmenn.
Þegar ráðstefnan var búin gekk ég rúman kílómeter að Beluga barnum þar sem ég hitti Gordon frá 9/20 sem ásamt Stephen hjá Metis hafði keypt upp eitt borðið á hátíðarkvöldverðinum og hafðið boðið mér. Þarna hitti ég borðfélaga kvöldsins og að loknum nokkrum stórum var gengið yfir á safnið þar sem kvöldverðurinn var.
Maturinn var fínn og þar hitti ég Iain Russell frá Scottish Intellectual Asset Center, en ég er að fara til þeirra í study visit þann 15. n.k. Hann var hress og kátur og hlakkaði til að hitta alla.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home