House on the Rock (Inn and Resort)
Eftir að hafa keyrt frá Minniapolis til Wisconsin var ég kominn til House on the Rock Inn. Ég hafði bókað hótelið á vefsíðu House on the Rock. Steve Tanner, annar leiðbeinandinn minn ætlaði líka að gista þarna fyrstu nóttina og spila golf á föstudeginum. Þess vegna ákváðum við að hittast í kvöldmat á fimmtudeginum. Það kom mér því á óvart að Steve var ekki bókaður á hótelið. Ég hváði og sagði hann ætla spila golf. Þá sagði stúlkan í móttökunni að hann væri líklega á hinu House on the Rock hótelinu, sem heitir "Resort" en ekki "Inn". Ég bar mig aumlega yfir þessu og fékk að vita að mistök sem þessi væru ekki óalgeng. Ég fékk mig því fluttann og keyrði yfir á hitt hótelið eftir að hafa fengið nákvæmt heimilisfang fyrir "Neverlost" tækið í bílnum. Þarna fékk ég risa stofu með eldhúskrók og stórt svefnherbergi og baðherbergi. Þarna var líkamsrækt og sundlaug svo það var ekki yfir neinu að kvarta.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home