Sjúklegt Sushi
Í gær, laugardag, fór ég í skipulagða gönguferð um miðbæ Zurich til þess að fræðast aðeins um staðinn og sjá aðeins út fyrir hótelið. Gönguferðin endaði á skrifstofum Keppler verðbréfafyrirtækisins sem Landsbankinn festi kaup á. Þar var boðið upp á alls konar smárétti og drykkjarföng. Ég varð samferða Ólafi Wernerssyni til baka á hótelið og sammæltumst við um að koma við á Sushi stað sem við höfðum séð á leiðinni.
Þetta var svolítið öðruvísi en ég hafði áður séð því réttirnir gengu á færibandi hringinn. Það var síðan snertiskjá fyrir framan mann þar sem maður gat pantað drykkjarföng eða fengið aðstoð. T.d. var nóg að taka disk af færibandinu og setja á snertipunkt á borðinu og þá kom mynd af réttinum á skjáinn og nánari lýsing. Við skemmtum okkur því hið besta við að kynna okkur innihaldið á diskunum sem runnu framhjá og ekki spillti að fá heitt Sake og japanskan bjór með.


1 Comments:
v'o freaky, greinilega komin i taeknioldina.. eg tarf ad smakka sushi e-h timann...
kv. Anna C
Skrifa ummæli
<< Home