sunnudagur, september 17, 2006

Að liðast í sundur undan eigin þunga

Eins og kom fram í fyrra bloggi þá var ég heldur betur haltur og endaði það með því að ég fór til læknis á miðvikudaginn síðasta og vildi hann að ég færi í röntgen til öryggis til að tryggja að beinin væru ekki að ganga í sundur af álaginu. Ég fór í myndatökuna á fimmtudag og fæ að vita niðurstöðuna á morgun, mánudag. Þetta er aldeilis spennandi því ég er á leiðinni í Oslóarmaraþon Glitnis þann 1. okt svo það er hver síðastur að komast í form.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home