þriðjudagur, september 05, 2006

Nýjar reglur í badminton

Það reyndi heldur betur á í fyrsta badda tímanum í dag. Það er búið að breyta reglunum í íþróttinni og erfitt fyrir gamla hunda að læra nýjar kúnstir.

Núna er spilað upp í 21 og alltaf stig þegar boltinn fer í jörðu. Það þarf ekki lengur að vinna sendiréttinn til þess að skora. Það er svolítið skrýtið að vera alltaf að telja en venst örugglega.

Það er erfiðara með tvíliðaleikinn því maður á að standa þeim megin sem maður skoraði síðast, en það getur verið erfitt að muna það í hita leiksins :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home