föstudagur, júní 23, 2006

Hamraborgin (mín há og fögur)

Mér hefur verið oft hugsað upp á síðkastið til þjóðsögunnar um Guðmund Góða, biskup þegar hann fór út í Drangey til þess að blessa bergið. Þegar hann kom að einum hluta eyjarinnar heyrðist rödd úr berginu sem bað biskup ekki að blessa þenna part því “Einhvers staðar verða vondir að vera”. Ekki það að ég telji mig eitthvað slæman en lærdómurinn er að allt þarf að finna sér sinn stað.

Fyrir tveimur vikur samþykktum við Ágúst tilboð í Engjateiginn og skv. því eigum við rýma húsið og skila til afhendingar þann 1. ágúst n.k. Þetta hljómar nú ef til vill ekkert ógnvekjandi en þegar haft er í huga allt dótið og draslið sem við erum með í húsinum svo ekki sé minnst á alla búslóðina mín í bílskúrnum, þá er þetta heilmikið mál. Það þarf sumsé að finna dótinu stað og líka sjálfum mér, því ég þarf að hafa einhverja skrifstofu eða vinnuaðstöðu, bæði til að vinna doktorsritgerðina og svo bara til að spekúlegra.

Ég leysti málið í gær, að ég tel, með því að taka á leigu tvö skrifstofuherbergi á þriðju hæðinni í Hamraborg 1 í Kópavogi. Annað hergið er inn af hinu og því upplagt sem geymsla fyrir alls konar dót, þar á meðal það af búslóðinni sem við ætlum að halda í þessari umferð. Það er samt kristaltært að það þarf að henda einhverju þegar við færum þetta á milli.

Ég fæ húsnæðið afhent 1. júlí og þá þarf að láta hendur standa fram úr ermum því ég fer til London 24. og síðan til Aruba svo það þarf allt að vera klárt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home