Er þetta málið ?
Ég er alltaf að gæta að holdafarinu og verður að segjast að það gengur ekkert alltof vel. Þess vegna gat ég ekki annað en brosað þegar ég fékk eftirfarandi texta sendan í morgun:
1. Japanir borða mjög litla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
2. Frakkar borða mikla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
3. Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
4. Ítalir drekka mjög mikið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
5. Þjóðverjar þamba bjór og háma í sig pylsur og þeir fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar.
Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu allt sem þig langar í.
Forðastu að tala ensku !!!


1 Comments:
Það er auðvitað danska.
Sá "danski" klikkar ekki.
Skrifa ummæli
<< Home