mánudagur, febrúar 27, 2006

Strax aftur af stað

Næst var það fimmtudagur 9. febrúar til Amsterdam með Sigrúnu. Við leigðum okkur bíl og keyrðum til Lúxemborgar þar sem Sigrún þurfti að vinna á föstudeginum. Við fengum uppfærslu og áttum góða ferð. Í Amsterdam beið okkar bílaleigubíll, sem ég uppfærði í þennan fína Audi A-6 station sem svínlá á hraðbrautinni. Þegar ég dólaði var ég á 140 og þegar mér fannst ég eitthvað kominn á ferð þá var ég á 170!!!. Bíllinn var með leiðsögubúnaði, sem átti eftir að bjarga okkur alveg. Við keyrðum í einni lotu til Lúx með tveimur slaufum við Brussel, þar sem ég náði ekki að beygja á réttum tíma vegna vegavinnu. Mér hrýs hugur við því hvernig við hefðum bjargað okkur út úr þessu ef við hefðum ekki verið með leiðsögubúnaðinn. Kerfið skilaði okkur beint á planið hjá Hilton hótelinu þar sem hið vænsta herbergi beið okkar. Við höfðum mælt okkur mót við Didda og Vittu í mat um kvöldið en þau höfðu valið veitingahús kvöldsins. Þau sóttu okkur kl. átta og fóru með okkur á steikarstað sem var allt í lagi. Það var gaman að spjalla við þau og sjá hvernig þau er aldeilis að gera það gott.

Á föstudeginum byrjaði Sigrún daginn snemma í vinnunni en ég svaf lengur og eftir að hafa unnið aðeins í tölvunni keyrði ég til Landsbankans í Lúx, þar sem ég hitti Arnar og fór yfir málin mín og síðan bættist Marinó í hópinn og við fórum saman í hádegismat. Þeir fóru með mig á Thai stað sem sérhæfði sig í Sushi og fékk ég mér tæra grænmetissúpu og sushi platta. Frábær matur! Síðan fór ég aftur á hótelið og dúllaði mér þar til Sigrún kom til baka. Við fórum í ræktina á hótelinu og laugina og borðuðum síðan á hótelinu.

Á laugardeginum var sleginn inn nýr áfangastaður in leiðsögukerfið og við fórum til Antwerpen á Radisson hótelið þar. Fengum ágætis herbergi og héldum síðan á keppnisstaðinn þar sem danskeppnin beið okkar. Þetta var óttalega hallærislegur staður og ekki batnaði hallærið þegar kom í ljós að það þurfti að borga fyrir að fara á klósettið. Þetta var Húbba, skipuleggjandanum, líkt því hann er einn peningur. Þarna hittum við fyrir Bjössa og Beggu sem voru að keppa í heimsmeistarakeppninni í standard. Við kepptum bæði pörin í Senior II latin um kvöldið. Okkur Sigrúnu leið vel á dansgólfinu. Þetta gekk nokkuð vel hjá okkur því Esther hafði lagað og breytt nokkrum hlutum í lotunum okkar daginn áður en við fórum svo við vorum nokkuð köld að reyna þetta. En þetta hafði lítil áhrif á dómarana því fengum ENGA merkingu, ekki eina einustu. Þetta voru okkur auðvitað vonbrigði því þetta segir okkur það að við erum ekki að ná neinu sambandi við dómarana. Við erum einfaldlega afskrifuð, reyndar með tveimur öðrum pörum, svo við lentum í 12-14 sæti. Þannig var ég nokkuð þreyttur og svekktur þegar við komum heim á hótelið um kvöldið sem réttlætti það að fá sér eina stóra Stellu fyrir nóttina....

Á sunnudeginum vorum við því með kvarðann rétt stilltan því nú var það Senior I og öllu fleiri pör. Bjössi og Begga voru að keppa í Senior III og því ekki í þessari. Við dönsuðum tvisvar, þ.e. redansinn líka og komumst auðvitað ekki áfram en fengum eina merkingu sem var sárabót ferðarinnar. Enn á ný, þá leið okkur vel á gólfinu, en vorum ekki að sýna það sem hefði komið okkur á blað. Við fórum bæinn með B&B og fengum okkur að borða á ítölskum stað. Síðan kíktum á hótelið þeirra, sem var svona eins og sumarbúðir eða Cabin. Við keyrðum þau reyndar heim á hótelið um kvöldið og settumst aðeins inn og töluðum við eitthvað dansfólk. Síðan kvöddum við B&B og fórum á hótelið okkar.

Við sváfum út á mánudeginum og tékkuðum okkur út á hádegi og keyrðum til Amsterdam og tékkuðum okkur inn á Radisson hótelið þar. Það var uppfærslutilboð í gangi svo það var innifalið aðgangur að ræktinni og bíórásin. Við fórum í ræktina og tókum vel á og síðan fengum við okkur að borða á veitingastaðnum. Það var frábært að fá svona frídag og slappa aðeins af, því það beið okkar heilmikil dagskrá.

Hjá mér var það þriðjudagurinn, sem byrjaði snemma á því að ég fór og skilaði bílnum á flugvöllinn og flaug til Glasgow til þess að fara á stjórnarfund hjá EJS UK. Sigrún flaug heim um hádegið. Ég átti fínt flug með KLM og tók leigubíl út í EJS UK. Við funduðum síðan stíft til 15:00 og þá keyrði Snorri okkur Gústa út á völl þar sem við tókum BMI til Heathrow og síðan kvöldvélina heim. Merkilegt nokk, þá fengum við uppfærslu svo það var fínt flugið heim. Ég var svo heppinn að Auður kom að sækja Gústa svo heimferðinni var reddað. En þetta var langur dagur.

1 Comments:

At mánudagur, 27 febrúar, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Nice... Audi A-6 með leiðsögutæki... munar um það.

Ertu hættur á radisson, bara á hilton?

finnst ykkur sushi gott?

Fáranlegt að þurfa að borga til að fara á klósettið, hef aldrei heyrt um slíkt nema á sleezy stöðum.
Leiðinlegt að fá enga merkingu en ykkur leið vel á dansgólfinu og fannst ykkur ganga vel. Það er gott.

Nice að fara í ræktina og hafa svo bíórásina í gangi.

Skil að þú sért þreyttur eftir allt ferðalagið.

kveðja frá Vín,
Anna

 

Skrifa ummæli

<< Home