Af Íslandsmeistaramótum
Þessi pistill hefði átt að birtast í síðustu viku en fjölskyldan í Álfkonuhvarfi stóð í ströngu þá helgina. Við hjónin mættum að venju í keppni um Íslandsmeistaratitil í flokki Seniora í Suður-Amerískum dönsum. Keppnin fór fram á laugardaginn um kl. 18 og hafði ég skokkað 18 km. um morguninn til þess að vera vel drenaður þannig að ég kæmist í dansbuxurnar!!! Við Sigrún fórum út á gólfið og gerðum eins og við gátum en úrslitin voru eftir bókinni og þriðja sætið enn á ný staðreynd. Þegar ég horfi á upptökuna af keppninni fannst mér nýja latin skyrtan mín gera mig bollulegri en ég þurfti að vera og skelfing að sjá. Það er ótrúlegt að spegillinn blekkir en myndavélin nær að sýna manni raunveruleikann sem um munar.
Það sem voru tíðindi helgarinnar var að Stefán kom heim eftir hádegi á sunnudeginum eftir að hafa verið að keppa frá því níu um morguninn. Hann kom heldur betur á óvart því hann varð TVÖFALDUR Íslandsmeistari í keilu, þ.e. í fyrsta og opnum flokki. Frábært hjá mínum manni. Þetta gerði meir en að bæta okkur upp danskeppnina daginn áður. Þetta er í annað sinn sem Stefán verður Íslandsmeistari í opnum flokki.
Til hamingju Stefán !!!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home