Jólaboð í Glasgow
Þetta var ekki beisin vika, sú síðasta því ég var í algjörri köku eftir ratleikinn. Ég vil nú meina að ég hafi verið kominn með einhverja magapest en þetta var algjört bull. Ég var meira og minna sofandi og með einhverja ógleði alveg þar til að það kom að því að fara til Glasgow á föstudaginn síðasta. Erindið var að fara á stjórnarfund hjá EJS UK og síðan á Christmas Dinner með starfsfólki fyrirtækisins, sem haldinn var á Marriott hótelinu. Minnugur sama viðburðar í fyrra, þá var væntingakvarðinn ekki hátt stilltur.
Við Sigrún vöknuðum hálf sex á föstudagsmorgninum og vorum lögð af stað til Keflavíkur hálftíma síðar. Það var spenna í loftinu því nú vorum við bæði komin með SAGA gullið og átti að láta reyna á gæðin. Það gekk vel að komast inn á fría bílastæðið við flugstöðina og síðan reyndi ekki á fyrr en við vorum komin í betri stofuna. Þá kom í ljós að það var bara eitt sæti eftir á SAGA class svo konan setti okkur saman í sæti í næstu röð á eftir SAGA. Okkur þótti þetta súrt í broti en ákváðum snöggt að sækja þetta eina sæti, sem Sigrún fékk og ég sat í sams konar sæti en aftan við tjaldið góða.
Annars var flugið til Glasgow á tíma og mjög þægilegt. Snorri sótti mig og Gústa en Sigrún beið eftir töskunum og fór á hótelið að tékka okkur inn og síðan í bæinn að versla aðeins. Hjá EJS UK var allt í standi en nóg að tala um. Við funduðum til rúmlega þrjú, en þá tók ég bíl á Marriott en Snorri keyrði Gústa út á völl því hann þurfti að vera í fertugsafmæli systur sinnar daginn eftir.
Ég kom mér ágætlega fyrir á hótelinu og kom mér fyrir á barnum og tölvaðist. Marriott hefur nefnilega ekkert net á herbergjunum og tekur 15 pund á sólarhringinn fyrir aðgang að þráðlausa netinu á barnum. Ég keypti mér klukkutíma á 6 pund og afgreiddi hin ýmsu mál dagsins auk þess að hafa samband við Stephen hjá Metis því við ætluðum að hittast uppúr fjögur. Sigrún kom stuttu síðar hlaðin ýmsum pinklum sem ekki má segja frá svona rétt fyrir jólin. Við sátum saman smá stund en svo ákvað mín að taka því rólega á meðan ég væri að spjalla við Stephen, sem kom reyndar ekki fyrr en rúmlega fimm og var Darran með í för. Við ræddum hina ýmsu fleti á samstarfi og líst mér ágætlega á hugmyndir þeirra. Framtíðin verður svo að leiða í ljós hvað verður úr þessu. Ég hafði meðferðis tvo ákavítispela sem ég afhenti þeim að skilnaði og sagði innihaldið gera jólasíldina að veislumat.
Við Sigrún fórum svo um kvöldið á Harry Potter og vorum hálftíma of sein miðað við auglýstan tíma. Myndin er svo löng og hæg að það skipti nákvæmlega engu máli. Poppið var ekki gott og tíminn lengi að líða. Þetta kláraðist allt á endanum og við ætluðum að setjast niður einhvers staðar eftir bíóið og fá okkur eitthvað smálegt en auðvitað hætta Skotarnir að elda hálf tíu og það var það. Við enduðum því á barnum á hótelinu og pöntuðum okkur samlokur af næturmatseðli. Ekki tókst betur til en þeir týndu pöntuninni og við fengum þetta eftir rúman klukkutíma og var góða skapið löngu farið að sofa.
Á laugardeginum sváfum við út og fórum síðan í bæinn þar sem við byrjuðum á því að fara á ítalska staðinn sem ég hafði tveim vikum fyrr farið að borða á. Ég fékk mér forrétt og pítsu. Um Sigrúnar val get ég ekki fjallað en það gekk illa upp. Eftir matinn fórum við í mollið að kaupa gjafir og síðan skiptum við liði. Ég fór í HMV að kaupa myndir og fleira til að gefa krökkunum í jólagjöf en Sigrún fór í M&S að kaupa eitthvað handa pabba sínum. Síðan hittumst við og ég tók alla pakkana heim á hótel og hafði það náðugt. Síðan hélt ég kl. hálf átta niður í veislusalinn til að taka þátt í jólagleði Skotanna. Sigrún kom hálftíma of seint en það kom ekki að sök. EJS UK var með borð út í horni við hátalarastæðuna svo það var rétt hægt að skjóta inn orði milli laga. Maturinn var ekki spes, súpa og síðan kjúklingur með fyllingu og kartöflum og loks einhver ostakaka í eftirrétt. Síðan tók við tryllt tónlist og reykvél mettaði salinn, sem gerði það gersamlega ómögulegt að haldast við þarna inni. Ég flúði á barinn og fékk mér eina Stellu og spjallaði síðan við Snorra og Ingu þar til klukkan var að verða hálf tólf. Þá fannst mér nóg komið og við Sigrún héldum til náða.
Heimferðin gekk vel. Við fengum okkur morgunmat og fórum klukkan níu út á völl. Þar mætti okkur biðröð með 200 kaupglöðum Íslendingum. Þá var nú gott að vera kominn með gullkortið og fara fram fyrir alla til að tékka inn og vera nú uppfærður á SAGA. Flugið var notalegt og gullkortið góða dugði til að koma bílnum frítt út af stæðinu svo þessi ferð var svo sannarlega þægileg og góð enda eins gott því það beið ansi þétt dagskrá þar til farið væri til New York á miðvikudeginum.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home