Stutt Skotlandsskot
Það var stutt stoppið á klakanum í þetta sinn því eftir að vera kominn heim í Álfkonuhvarfið kl. 8 á laugardagsmorgninum, þá vaknaði ég kl. hálf sex á sunnudeginum og dreif mig af stað út á völl og var ferðinni heitið til Glasgow í þetta sinn. Erindið var að eiga starfsdag með EJS UK og fara yfir verkferla í bókhaldi og fyrirkomulag því eftir að framkvæmdastjórinn hætti í sumar, þá kom í ljós að hann hafði haldið ferlum þétt að sér og ekki hleypt öðrum að. Ekki að það væri neitt óhreint mjöl í bókunum, heldur snerist þetta frekar um að vita hvernig hlutirnir væru gerðir.
Ég var ekki vel stemmdur fyrir ferðalaginu því New York ferðin hafði verið mér hálf önug, eins og lesa má í öðrum pistli. Þess vegna kom það mér þægilega á óvart að ferðalagið átti eftir að verða mjög þægilegt. Ég hitti Þorvald frá RANNÍS í Saga biðstofunni og varð spjallið svo áhugavert að ég gleymdi næstum að fara í flugið mitt á réttum tíma. Síðan var flugið út afar þægilegt. Nýju Bose höfuðtólin eru kraftaverk og útiloka allan hávaða þannig að ég sofnaði vært og lenti úthvíldur í Glasgow. Ég átti pantað herbergi á Radisson SAS en þar sem ég var snemma á ferð þurfti ég að fara í klukkutíma göngutúr sem ég nýtti vel. Ég rölti út á Georg Square og hringdi í Árna Valgarð, sem var búinn að koma sér huggulega fyrir heima hjá sér með sunnudagsblaðið og kaffisopa. Hann lét vel af sér og ég sagði honum hvað kollegar hans í New York væru vel hugsandi. Áttum við gott spjall saman.
Ég fékk þetta fína herbergi á Radisson og dreif mig í ræktina eftir að hafa lagt mig, því ég var eitthvað eftir mig ennþá eftir tímamuninn í USA. Síðan dreif ég mig út að leita að pizzustað, hvern ég fann og endaði kvöldið á að fara á bíó og sjá leirkarlana, Wallace og Gromit. Reyndar þurfti ég að bíða í klukkutíma eftir myndinni svo ég fann þennan fína bar sem hét því fróma nafni “I love vodka” og sötraði Amstel til að drepa tímann. Það hjálpaði örugglega líka til að gera myndina skemmtilega. Ekki varð fjölmennið í bíóinu til trafala því það voru 5 manneskjur í salnum. Ekki verra.
Vinnudagurinn hjá EJS UK gekk vel og þar sem ég vissi að Snorri var með fólkið sitt frá Íslandi í heimsókn bað ég hann að vera ekki að halda mér selskap um kvöldið. Ég hafði nefnilega sent póst á Stephen Roberts hjá Metis Partners, sem er einn af ráðgjöfum SIAC, og við höfðum mælt okkur mót kl. átta til að spjalla saman. Við ræddum um heima og geima og er ég viss um að hann getur hjálpað til við frekari landvinninga í Skotlandi.
Heimferðin var alveg makalaus og verð ég að taka til baka allt ljótt sem ég hef sagt um Flugleiði. Haldiði að þeir hafi ekki upgrade-að alla silfurfuglana í SAGA class!!! Ég varð klökkur og þáði boðið með þökkum og þar með var þessari ferð lokið en hún fer í flokk þeirra þægilegri þegar litið er á árið til baka.
Aðeins um tölfræðina. Eftir þessa ferð stend ég í sléttum 130 ferðadögum á árinu og væntanlega eru ennþá 13 eftir. Aldeilis framför frá 87 dögunum á síðasta ári. Met !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home