þriðjudagur, október 18, 2005

Skotist til Skotlands

Ég komst í rúmið um miðnættið eftir heimkomuna frá Danmörku til þess að vakna hálf fimm til að undirbúa flugið til Glasgow. Gústi kom á bílnum að ná í mig og þurfti ég að lóðsa hann í Álfkonuhvarfið, því hann hafði aldrei komið þangað. Flugið til Glasgow var fínt því ég fékk sæti í sætaröð 4 þar sem SAGA var aðeins 3 sætaraðir. Við Gústi vorum bókaði í sæti hlið við hlið og þar sem hann fékk upgrade útaf gullinu hafði ég sætaröðina útaf fyrir mig og svaf eins og ég gat.

Í Glasgow beið Snorri fyrir utan og keyrði okkur beint í EJS UK þar sem við hófum stjórnarfund, sem var einnig til þess að undirbúa “business coaching session” á miðvikudeginum. Þegar fundinum lauk, keyrði Snorri okkur niður í bæ á hótelið mitt þar sem við Gústi sátum í tvo tíma og ræddum málin. Þar sem við náum ekki að hittast mikið, var ágætt að stilla strengi og móta stefnu í hinum ýmsu málum sem við komum að.

Snorri sótti okkur síðan aftur og bauð okkur heim til sín í mat þar sem Inga, konan hans, hafði galdrað fram þennan fínasta lax og súpu á undan. Áttum við notalega stund og spjölluðum um heima og geima þar til ég tók leigubíl til baka á hótelið, en Gústi gisti hjá þeim hjónum.

Morguninn eftir lenti ég í leigubílahallæri og var kortéri of seinn í tæknigarðinn þar sem EJS UK er til húsa, en það hafði verið leigt fundarherbergi fyrir áðurnefnda ráðgjafavinnu. Ráðgjafinn var af grískum uppruna og heitir því fróma nafni Angel Angelitis. Hann sagðist vera “licenced business coach”, hvað sem það nú þýðir. Hann var að keyra prógram að amerískri fyrirmynd og var mjög skemmtilegur. Mér fannst reyndar nóg um samkvæmisleikina en það er kannski bara útaf því að ég er svolítið seinn að fatta :-)

Ég þurfti síðan að rjúka burt rétt fyrir fjögur því við Ásta Þorleifs áttum að funda með SIAC útaf endurmatinu á þekkingarverkefnunum þeirra. Ásta hafði setið með þeim frá kl. 14:00 og þegar ég kom virtist dagskráin að mestu tæmd. Þau höfðu farið yfir flesta fleti á málinu og niðurstaðan var sú að við Ásta myndum koma með tillögu að endurmatinu og þær stöllur svara með sínum hugmyndum. Stærsta breytingin frá því sem ég hafði hugsað var að dagarnir þrír í Glasgow 23-25 nóv áttu upphaflega að vera tvisvar sinnum 20 mín kynningar á PIP annars vegar og endurmatinu, breyttist í að þann 24. eigum við að vera með dags vinnustofu með ráðgjöfunum um okkar mat á verkefnunum. Þetta er svolítið snúið því þetta er líkt og rjúpurnar séu með námskeið fyrir veiðimenn í því hvernig á að skjóta þær !!!

Fimmtudagurinn var nokkuð rólegur þar sem ég fór í ræktina fyrir hádegi og tók loftfirrða þjálfun, sem er annað orð yfir spretti, til þess að tékka á tempóinu mínu. Var ég ekki í góðu standi. Hælsporinn í hægra fæti var alltaf að angra mig. Hvað um það, ég slakaði vel á í pottinum og gerði mig kláran í hádegisverðinn með SIAC fólkinu til þess að klára umræðuna hvað mig varðaði. Þau buðu mér á City Inn hótelið að borða, en það var hótelið sem þau bókuðu fyrir Ástu. Maturinn var ágætur og spjallið yndælt, en bætti littlu við, nema að Gavin, ráðgjafinn sem var með okkur, hafði unnið við einkaleyfagerð. Þar sem þetta er eitt af þeim málum sem mér er umhugað um fyrir GoPro, þar sem ég er stjórnarformaður, var ég að ræða þetta við hann í þaula og er að velta fyrir mér hvort ég eigi ekki að fá hann heim.

Að loknum málsverði gekk ég niður í bæ og hringdi í Árna Valgarð á meðan. Það var langt síðan ég hafði heyrt í Árna, sem hafði reyndar verið á Íslandi helgina áður. Mér finnst afar skynsamlegt hvernig Árni hefur haldið á málum með því að fara í framhaldsnám og síðan í starfaskipti hjá KPMG í St. Albans. Þegar þessum tíma lýkur í apríl á næsta ári verður hann ljósárum á undan mörgum starfsfélaga sínum á Íslandi. Ég leit því næst við í HMW og M&S til að versla skylduvarning og hélt síðan á hótelið og fór í ræktina að nýja þar sem ég tók aftur prógrammið frá því fyrr um daginn. Nú styttist illþyrmilega í maraþonið og síðasti sjéns að verðlauna sig. Ég fór því um kvöldið á veitingastað á hótelinu og fékk mér steik, franskar og tvo bjóra með, í því trausti að þarna væri enginn til þess að kjafta frá!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home