Meira um héra
Árið 1973 gaf hljómsveitin Jethro Tull út plötuna A Passion Play. Platan hlaut hræðilega dóma og varð til þess að hljómsveitin fór í felur í lengri tíma. Ég er reyndar afar hrifinn af plötunni og varð hugsað til hennar þegar ég skrifaði síðasta blogg um vikuna mína í Undralandi og samlíkinguna við hérann í sögunni. Á plötunni er að finna sögu sem varð vinsæl og kvikmynduð og fjallar einmitt um héra. Svo skemmtilega vill til að þegar platan var endurútgefin og endurhljóðblönduð þá fylgdi þessi myndbútur með á geisladisknum. Þetta varð mér tilefni til þess að þýða þessa ágætu sögu á íslensku og hér kemur því:
Sagan af héranum sem týndi gleraugunum sínum.
Ugla elskaði að hvíla sig á meðan enginn sá til. Henni brá, þar sem hún sat á girðingunni dag einn þegar Kengúra þaut framhjá. Þetta þyrfti ekki að sýnast undarlegt, en þegar Ugla heyrði Kengúru hvísla að engum sérstökum “Héri er búinn að týna gleraugunum sínum”, þá fór hún að velta þessu fyrir sér.
Í þessa mund birtist tunglið fram undan skýi og þarna, liggjandi í grasinu var Héri. Í læknum sem rann meðfram grasinu var Salamandra. Og Býfluga sat á grein í runna. Grunsamlega hreyfingalaus skalf Héri af æsingi því að án gleraugnanna sinna var hann algjörlega hjálparvana. Hvar voru gleraugun hans? Gat einhver hafa stolið þeim? Hafði hann týnt þeim? Hvað átti hann að taka til bragðs.
Býflugu langaði að hjálpa til og þar sem hún taldi sig hafa svarið sagði hún, “Þú hlýtur að hafa étið þau og líklega haldið þau vera gulrót. “Nei” truflaði Ugla, sem var vitur. “Ég hef góða sjón, innsýn og forsjá. Hvernig gæti greindur héri gert slík kjánaleg mistök?” En allan þennan tíma, hafði Ugla setið á girðingunni, vælandi!
Kengúra var hoppandi reið yfir svona tali. Hún taldi sig vera mun æðri í greind en hina. Hún var foringi þeirra og leiðtogi. Hún hafði svarið:”Héri, þú þarft að leita til sjóntækjafræðingsins”. En þá varð henni ljóst að hérinn var algjörlega hjálparvana án gleraugnanna sinna. Kengúra sagði því hátt og snjallt: “Ég get ekki sent Héra að leita að neinu!!!
“Þú getur það, þú getur það” hrópaði Salamandra. “ Þú getur sent hann með Uglu.” En Ugla var farinn að sofa. Salamandra vissi betur en að láta slíkt smáræði stöðva sig. “Þú getur sett hann í pokann þinn” En því miður var Héri of stór til að hann kæmist í pokann hjá Kengúru.
Á meðan á öllu þessu stóð hafði Héra orðið það full ljóst að hin vissu ekkert um gleraugu. Þrátt fyrir allar freistandi hugmyndir þeirra, stóð honum á sama. Týndu gleraugun voru hans einkamál.
Hann vissi sem var,
að hann átti auka par.
ENDIR


4 Comments:
Ég hélt að héranum stæði alveg á sama þvi hann ætti pantaðan tíma í leiser-aðgerð. En hann hefur líklega ekki haft efni á því, enda hérar ekki líklegir til að afla mikils fjárs í markaði sem krefst áhættufjárfestinga til að græða eitthvað...
Málið er að sjónlagsaðgerðir voru ekki þekktar árið 1973 :-) Þess vegna átti hérinn aldrei sjéns. Engu að síður var greiningin rétt hjá þér. Hann hefði aldrei farið.
Takk fyrir innlitið !!!
bíddu bíddu... var þessi saga í sambandi við jethro tull?
Ok ég er týnd....
Ævintýrið um hérann er að finna á plötunni með Jethro Tull.
Skrifa ummæli
<< Home