mánudagur, nóvember 21, 2005

Jólagjöfin kom snemma í ár

Það var heldur betur gleði í dag þegar það kom tölvupóstur frá Emerald Publishing um að ég hefði fengið birta mín fyrstu grein í Journal of Intellectual Capital. Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ mig birtan í vísindariti, var þetta alveg frábær tilfinning. Ég er samt ekki viss um hvort allir skilja, eða deila, þessari gleði minni, en trúið því bara. Þetta var FRÁBÆRT !!!!

Þið getið nálgast greinina á:
http://www.emeraldinsight.com/Insight/viewContentItem.do?contentType=Article&contentId=1528955

Ekki nóg með það, heldur kom í dag út tímaritið Vísbending, sem er gefið út vikulega og fjallar um efnahagsmál. Þar átti ég grein svo það var tvöföld gleði í dag. Þar sem Vísbending er í takmarkaðri dreifingu ætla ég að setja þá grein í sérstakt blogg.

2 Comments:

At mánudagur, 21 nóvember, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Vá til hamingju :)


Ég er svo stolt af þér, þú átt þetta svo sannarlega skilið. Þú verður að sýna mér þær þegar ég kem heim

kv. Anna vínarbúi

 
At mánudagur, 21 nóvember, 2005, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín. Það styttist í að þú komir heim og þá sýni ég þér þetta.

 

Skrifa ummæli

<< Home