sunnudagur, nóvember 20, 2005

Dansinn dunar

Ég fór á Lottó keppnina í gær að horfa á. Það var alltaf ætlunin að keppa. Sigrún var búin að víkka dansbuxurnar mínar svo ég hafði föt til að fara í. Utan dagskrár verð ég að segja að ég er farinn að halda að ég verði verðugur fulltrúi Michellin fjölskyldunnar með þessu áframhaldi. Við byrjuðum að æfa um leið og ég kom heim frá útlöndum og það var heldur betur áfall, því ég mundi hreinlega ekki hluta af lotunum mínum. Ég varð því að sækja vídeóspólu með Loret de Mar keppninni til þess að getað rifjað upp sumar loturnar. Ég var líka byrjaður að borða gras og fara í ljós til að bjarga því sem bjargað yrði af útlitinu. En þá gripu æðri máttarvöld í taumana og lögðu Sigrúnu í svo skæða flensu að hún steinlá í vikunni og hafði rétt þrek til að horfa á í gær. “Sjúkket”

Það var gaman að sjá alla aftur. Ég hafði ekki hitt Eyjólf og Þórdísi, Jón og Röggu og Bjössa og Beggu í lengri tíma og gott að sjá alla í fínu formi. Það voru auðvitað fleiri þarna og sama fólkið að hamast við að láta allt ganga upp. Keppnin var ekki á eftir áætlun, sem þótti saga til næsta bæjar. Hafsteinn benti mér á þetta og sagði þetta vera í fyrsta skipti í sögunni sem þetta gerðist. Ég benti honum þá pent á að keppnin hefði alltaf verið á tíma þegar ég sá um rennslið í ein fjögur ár. Svona eru allir fljótir að gleyma !!!

Ég var að mestu með augun á keppninni í Fullorðnir-Latin. Þar voru Seniorarnir okkar með því þau vildu ekki sér riðil nema við Sigrún hefðum verið líka. Það voru, að ég held, 11 pör svo það var milliriðill og allir dönsuðu a.m.k. tvisvar. Það var hægt að sjá á úrslitum dagsins að dómarapanellinn var danskættaður því dönsku gestunum gekk óvenju vel. Ekki svo að það væri ekki verðskuldað, öðru nær. Þegar ég horfði á úrslitalotuna, þá hafði ég á orði að þetta væri engan veginn öruggt hjá Elísabetu og Max því ég hafði á tilfinningunni að þau væru eitthvað að þreytast í baráttunni. Mér fannst Ásta Sigvalda alveg frábær á gólfinu og Steven McCann, nýi herrann hennar, var kannski ekki sá glaðlegasti á gólfinu en tæknilega mjög góður. Við fórum áður en verðlaunaafhendingin hófst en heyrðum síðar að Ásta hefði unnið. Til hamingju með sigurinn. Það er alltaf gaman þegar úrslitin eru ekki eftir bókinni og dagsformið fær að ráða.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home