þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Ekki alltaf jólin í dansinum

Við hjónin fórum á Broadway um helgina á Jóladanskeppni Dansráðs Íslands. Það sem var öllu merkilegra var að við tókum þátt í keppninni þrátt fyrir að Sigrún væri engan veginn búin að ná sér. Þetta var sett upp sem leikur og dómararnir þekkt fólk eins og Dorrit, Þorgerður Katrín, Róber í Actavis, Svava í Sautján og Idol stjarna. Þannig átti fólk von á aðeins öðruvísi úrslitum. Þegar kom að okkur þá var þetta hrein skelfing. Sigrún gerði eitthvað af sér í Cha Cha-nu og fór úr takti sem er algjör dauðasynd í dansi. Hún sneri baki í mig í lotunni og ég gat engu tauti komið fyrir hana fyrr en við stóðum skyndilega hlið við hlið og ég gat rifið í hendina á henni og stoppað hana. Samt alltof seint. Næst var það Rúmba, sem var bara nokkuð góð á okkar mælikvarða og var ég að vona að allt væri komið í lag. Ó-nei!!! Ég reyndi fjórum sinnum að byrja á Jive-inu en Sigrún ætlaði alltaf af stað einni talningu of fljótt. Ég rauk því að stað í fimmtu tilraun, en nú var komið að mér að fara á tauginni eftir allt sem á undan var gengið og ég ruglaðist í lotunn, þótt ég héldi takti og varð þetta einn allsherjar sirkus hjá okkur. Það var skelfilegt að verða sér svona til skammar. Fólk var að reyna að vera kurteist við okkur og hrósa okkur fyrir góða frammistöðu en ég vissi betur og átti erfitt með að þiggja lofið. Að öðru leyti var gaman að hitta fólkið en ægilegt að klúðra svona.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home