Enn eitt Skotlandsskotið
Það var flott að fá greinina birta, en ekki til setunnar boðið því á þriðjudeginum vaknaði ég kl. hálf sex á og dreif mig af stað út á völl og var ferðinni heitið til Glasgow að taka þá í tveimur ráðstefnudögum hjá Skotunum. Fyrst er svokallað Dissemination Event í Glasgow, þá Evaluation Workshop (sem við Ásta stýrðum). Upphaflega áttu þetta að vera þrír dagar og þar af tveir í skosku hálöndunum en því var frestað vegna lélegrar þátttöku og fært til bæjar á ný.
Flugið var svo sem ágætt en nú var ég ekki á Radisson eins og ég vil frekar, heldur var það Glasgow Hilton, sem er nokkuð lengra í burtu. Ég fór beint á hótelið og lagði mig í tvo tíma til að ná svefninum í lag því ég hafði verið í brekkusprettum kvöldið áður og vakað frameftir til að undirbúa mig svo ég var ansi lúinn. Því næst fór ég í bæinn og fann mér pítsustað og fór síðan í M&S til að kaupa mér jakkaföt, skyrtur og bindi því þetta er svo ódýrt þarna að það er næstum einnota. Síðan hitti ég Stephen, Darren og Snorra kl. 16:00 þar sem ég kynnti Snorra fyrir þeim og við fórum yfir möguleika á samstarfi. Ég vann aðeins fram á kvöldið þar til Ásta birtist eftir að hafa verið á NICe verkefnastjórafundi í Osló daginn áður og við settumst á barinn og fórum yfir málin og síðan hittum við Huggins, Ann og Nea, sem voru komin til að taka þátt í fundum morgundagsins og sátum við að spjalli.
Á miðvikudeginum var Dissemination Event hjá IAC og var Ásta með innlegg um PIP auk annarra innleggja sem m.a. voru kynning á Wissensbilanz og hinir ýmsu samkvæmisleikir hjá Stepen og Darren sem ætlaðir voru til að brjóta upp stemmninguna. Í restina var settur upp panell til að ræða málin og svara spurningum og var ég beðinn að sitja í honum og svaraði nokkrum spurningum til að láta ljós mitt skína. Þetta var sumsé átakalítil samkoma. Um kvöldið töltum við Ásta í bæinn og fórum að borða á ítölskum stað, þar sem ég fékk mér þessa fínu steik og veitti ekki af því ég var eitthvað sloj og steikin náði heldur betur að lækna það.
Á fimmtudeginum var svo komið að Evaluation Workshop hjá okkur Ástu. Við höfðum einkaviðtöl í sitthvoru lagi við ráðgjafafyrirtækin fjögur fyrir hádegi og strax eftir matinn skiptum við hópnum í tvennt, þ.e. að nú hafði IAC staffið bæst í hópinn. Við skiptum síðan um hópa eftir klukkutíma og settum alla saman síðast klukkutímann til þess að fara yfir punktana sem fram höfðu komið og hvað lærdóm mátti draga af þeim. Þetta varð nú svolítið hnútukast í restina, en það var örugglega bara gott að liðið hleypti aðeins af gufunni. Reyndar fannst mér svolítið skondið að vera kominn til þess að meta frammstöðu í verkefnum sem er enn ekki lokið og sum ekki komin almennilega af stað. Það verður því fjör að skrifa lofaskýrsluna í janúar.
Ég settist aðeins niður með Stephen eftir þetta allt saman og við ræddum möguleika á samstarfi og verður athyglisvert að sjá hvað kemur út úr því. Ég held að Skotland sé að þeirri stærð sem hentar okkur Íslendingum til landvinninga og hægt að skala til. Annars var þetta stutt stopp á barnum, því það voru flestir á heimleið þannig að við Ásta töltum enn á ný í bæinn og fórum í þetta sinn á kínverskan stað rétt hjá Radisson sem við Gústi höfðum tölt á í síðustu ferð. Þetta var ágætasti matur en stressuð þjónusta svo að maður var snöggur að borða.
Á föstudeginum var svo haldið heim en stoppað fyrst í Skypark hjá IAC að sækja fyrsta tékkann fyrir vinnuna. Það var ekkert upgrade í þetta sinn og ég var feginn að komast heim


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home