þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Enn ein jólagjöfin kemur snemma

Já, haldiði ekki að ég hafi fengið enn eina jólagjöfina í dag þegar ég athugaði punktastöðuna mína hjá flugleiðum og komst að því að ég var loksins kominn í gullið. Nú á ég möguleika á uppfærslu á SAGA í hvert sinn sem ég flýg, stæði út á velli og ýmisleg önnur hlunnindi.

Ég tók mig nefnilega til og fékk hana Þóru til að fara yfir punktayfirlitið mitt og þá kom í ljós að það vantaði eina 7500 punkta sem náði að skutla mér yfir 80.000 eftir Glasgow túrinn í síðustu viku. Það verður því gaman þann 9. des að prófa að sjá hvort ég fæ uppfærslu þegar ég fer í jólamatinn í Glasgow hjá EJS UK.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home