föstudagur, janúar 20, 2006

Árið sem leið (hratt)

Jólin voru stutt þetta árið og áramótin líka, þar sem þetta lenti allt á helgi. Það var ys og þys, því Ásdís og Ingimar fóru aftur til Árósa þann 29. að loknu jólaboðinu, sem var að þessu sinni hjá Arent kvöldið áður. Ég skutlaði Dönunum mínum út á völl enda vanur maður. Ég var að telja það saman að ég fór 24 sinnum út á árinu 2005 og var samtals 142 daga erlendis eða næstum fimm mánuði. Ég fór á marga staða og hitti margt folk og átti ýmis erindi. Ég held að ég toppi þetta seint, en sjáum til því 2006 gæti svo sem verið ferðaglatt, þótt ég sé aðeins með 45 daga planaða í upphafi árs. Við Stefán fórum síðan okkar vanabundna rúnt fyrir áramótin og keyptum skotkökur fyrir hellings pening. Þar sem ungi maðurinn hafði lýst því yfir að hann færi í gleðskap stuttu eftir miðnætti á Gamlárs, þá var ákveðið að hann myndi hafa fáar en afar tilkomumiklar sprengingar. Þegar til kom, stóðu tundrin undir nafni og við höfum aldrei sprengt svona ofboðslega, enda komst ekkert annað fyrir í Bensanum. Þetta voru örugglega rúmlega 100 kg. af sprengiefni.

Þegar ég lít á árið 2005, þá var þetta ár breytinga. Við seldum Kaldaselið sem við höfðum búið í sl. 17 ár og fluttum í Kópavoginn með þeim ásetningi að byggjað okkur hús fyrir jólin 06. Ásdís og Anna fluttu erlendis til náms og finnst mér alveg frábært hvað þær eru duglegar að nýta tækifærið, sem ekki gefst öllum. Ég dvaldi mikið erlendis og tók nokkrar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir sjálfan mig er varða vinnuna mina og námið og verður fróðlegt að sjá hvernig ég næ að vinna úr því á næsta ári. Ég kynntist mörgu fólki og mörgum stöðum sem var afskaplega lærdómsríkt. Síðast en ekki síst var þetta hagstæðasta árið okkar hjóna fjárhagslega ef undan er skilið Kodak árið 2000. Þess vegna held ég að árið 2005 verði minnistætt fyrir margra hluta sakir og spennandi að sjá hvað býr í komandi ári.

2 Comments:

At fimmtudagur, 26 janúar, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Mjög afrekaríkt ár hjá þér elsku pabbi minn, alltaf jafn duglegur og þetta árið duglegur í að ferðast. Þú mátt vera stoltur af sjálfum þér ;)

Kveðja frá Vín,
Anna

 
At föstudagur, 27 janúar, 2006, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín. Þú ert nú ekki síður dugleg að vera svona sjálfstæð og treysta þér til náms erlendis. Ég er sko aldeilis stoltur af stelpunni minni :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home