Síðbúinn Jólapistill
Það var fjör að koma heim frá New York og hitta Önnu heima í Álfkonuhvarfinu. Það stóð líka meira til því við Sigrún höfðum ákveðið í samráði við Ásdísi og Ingimar að þau kæmu í óvænta heimsókn á afmælisdeginum hennar Önnu á miðvikudeginum. Það þurfti því að skrökva aðeins að fólki og var tengdó t.d. búin að senda jólagjafirnar út og því þurfti að koma með þær til baka. Það var meira plottað því það þurfti að fá lánað uppblásanlegt rúm (með rafmagnsdælu) sem var afar flott, til það að koma öllum fyrir í litlu íbúðinni. Ásdís og Ingimar voru í herberginu hennar Önnu og Anna blessunin á loftpúðanum inni hjá okkur.
Ég sótti Danina okkar og urðu aldeilis fagnaðarfundir hjá þeim systrum. Við höfðum þann háttinn á að Anna vissi ekkert fyrr en Ásdís og Ingimar birtust í dyrunum og sungu afmælissönginn fyrir hana. Var ekki laust við tár á hvarmi hjá afmælisbarninu við uppákomuna. Síðan vorum við með fjölskylduboð um kvöldið og var ekki laust við að allir yrðu hissa þegar þeir sáu Ásdísi.
Þessi jól verða mér lengi minnistæð fyrir það hversu sérstök þau voru. Við keyptum ekkert jólatré því við áttum lítið gervitré sem við höfðum upp á borði, því það var ekkert pláss. Við bjuggum ansi þétt og lítið pláss fyrir hvern og einn, en það var bara betra því við vorum miklu meira saman en oft áður. Jólasteikin tókst alveg frábærlega (þó ég segi sjálfur frá) og vandséð hvernig það verður jafnað (læt fylgja mynd sem Ásdís tók af steikinni). Ég vann möndluna þótt ég taki síðustu tartalettuna. Svo var það piparkökuhúsið sem ég keypti í Macy´s, og dröslaðist með í handfarangrinum heim. Brjáluð hugmynd, en skemmtileg minning. Síðast en ekki síst var auðvitað best að fá dæturnar heim og eiga jólin saman með allri fjölskyldinni. Þar sem íbúðin er ekki stór, þá var ekkert pláss til að stressast og við vorum svo mörg að þetta var einhvern veginn miklu rólegra en ég bjóst við. Fyrstu (og vonandi einu) jólin í Álfkonuhvarfi voru frábær :-)


2 Comments:
he he...flott mynd af purusteikinni
Já, mér fannst ég verða að nota tækifærið og monta mig fyrst myndin var til :-)
Skrifa ummæli
<< Home