sunnudagur, febrúar 12, 2006

Síðan var það Íslandsmet hjá Stefáni !!!

Já Stefán gerir það ekki endasleppt. Hann hringdi rétt um miðnættið á fimmtudagskvöldið og sagði að hann hefði sett Íslandsmet í piltaflokki, þ.e. spilað hæstu seríu 737 eða náð 27 af 36 fellum mögulegum

Frábær árangur og til hamingju Stefán minn !!!!!!

Annars voru svona fréttirnar á www.keila.is

Ísland Open - dagur 1
Fyrsti dagurinn byrjaði með látum í Ísland Open, Magnús S. Magnússon spilaði sinn hæsta leik og um leið hæsta leik mótsins, þegar hann náði 289. Stefán Claessen setti Íslandsmet í flokki unglinga 17-18 ára þegar hann spilaði 737 í seríu sem jafnframt er hæsta serían í mótinu. Leikirnir voru 253-225-259 og var hann með 27 fellur í seríunni. Við óskum honum til hamingju með þennan frábæra árangur.


Mánudagur, 6. Febrúar 2006 kl. 22:50
Stefán og Magna unnu opnaflokkinn.
Íslandsmóti unglinga lauk um helgina. Leikið var í fjórum flokkum pilta og þremur flokkum stúlkna. Sigurvegarar urðu:
Stefán Claessen ÍR 1. flokkur pilta
Skúli Freyr Sigurðsson KFA 2. flokkur pilta
Daníel Freyr Sigurðsson ÍR 3. flokkur pilta
Arnar Davíð Jónsson ÍR 4. flokkur pilta
Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR 1. flokkur stúlkna
Ástrós Pétursdóttir ÍR 2. flokkur stúlkna
Steinunn Inga Guðmundsdóttir KFA 3. flokkur stúlkna

Einnig var leikið í opnum flokki pilta og stúlkna. Þá flokka sigruðu Stefán Claessen ÍR og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR. Óskum við öllum unglingunum til hamningju.

1 Comments:

At mánudagur, 27 febrúar, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Við erum öll rosa stolt af Stefáni...Til hamingju stefán

hvenær á svo að fara að blogga?

Mig vantar að vita hvað er að frétta af pabbanum.

Kveðja frá Vín,
Anna

 

Skrifa ummæli

<< Home