Afmælisdagur á sjó
Þá var runninn upp afmælisdagurinn minn, sem líka var Páskadagur. Þetta var siglingadagur á skipinu, þ.e. að við vorum ekki í höfn þennan dag. Eftir höfðinglegan morgunverð í Windjammer, fór ég upp á dekk í sólbað og naut dagsins. Ég fékk þessa fínu afmælispakka frá Sigrúnu, glæsilegt Seiko úr, rakspíra og rakakrem (með sólvörn).
Síðan fór ég seinni partinn að hlaupa og fór mínar 5 mílur eða 8 kílómetra. Var reyndar á síðustu metrunum því það var formlegur klæðnaður þetta kvöld, smóking og síðir kjólar (örugglega mér til heiðurs). Þess vegna hafði danshópurinn ákveðið að fara í hópmyndatöku til þess að eiga mynd af hópnum í sínu fínasta pússi. Ég sendi Sigrúnu á undan og kom síðan á eftir bullsveittur með handklæði til að þurrka mesta svitann. Þess vegna er ég rauður og sællegur á myndinni góðu.
Þegar kom á veitingastaðinn í kvöldmatinn var byrjað á því að danshópurinn og þjónarnir sungu “Happy Birthday” og það kom afmæliskaka með kerti sem ég blés á. Síðan söng hópurinn sama lag við íslenskan texta (“Hann á afmæli í dag”) og færði mér nokkrar smálegar gjafir í formi t-bols og súkkulaði. Frábært framtak. Síðan var skálað í kampavíni fyrir öllu saman.
Eftir matinn var meiningin að ég og Óli myndum skrá okkur í Idol-Karaoke keppni en þegar við komum á staðinn var skráningu lokið og keppni að hefjast. Sigrúnu fannst ómögulegt að ég kæmist ekki að á afmælinu og samdi við skemmtanastjórann um að ég fengi að syngja eitt lag að lokinni keppni vegna þess að ég átti afmæli !!!!
Þetta stóðst allt saman, en það var þrautin þyngri að velja lagið. Ég hafði alltaf ætlað mér að syngja Whitesnake ballöðuna “Is this love” en hún var ekki í boði, heldur ekki “White wedding” með Billy Idol, enda hefði ég sjálfsagt valdið einhverjum hjartaáföllum ef ég hefði stormað með það á sviðið í smókingnum : - ) Á endanum varð mér hugsað til þess þegar við Ásdís tókum lagið á Mallorka og þar byrjaði ég á “Back in the USSR” með Bítlunum, og það lag svíkur ekki.
Það var því Mr. Eggert, sem var kallaður á svið “because he has a birthday” og ég stóð þarna eins og illa gerður hlutur en hafði vit á að segja “Thank you for coming to my birthday party” og þá var ísinn brotinn og allir með á nótunum. Ég hóf síðan raust mína og gaf allt sem ég átti í lagið og komst þrautalaust í gegnum lagið, að ég best veit. Mér val vel tekið af danshópnum eftir sönginn og á leið til koju sagði Jón Eiríkss. að hann liti mig í nýju ljósi. Mér brá nokkuð og spurðu hvort þetta hefði verið svona agalegt, en þá sagði hann öðru frekar, að ég hefði sýnt á mér entertainment hlið sem hann ekki þekki.
Sem sagt, ég var entertainer á afmælisdaginn minn.
PS: Takk til allra sem reyndu að ná til mín á afmælisdaginn. Það var vita vonlaust nema með tölvupósti því það var ekkert símasamband á eyjunum þessa daga.


5 Comments:
Enn og aftur til hamingju með afmælið pabbi minn. Þú átt inni afmælisgjöf frá mér.
Þú gætir kannski reynt að komast inn í Ameríska Idolið á næsta ári þegar þú átt afmæli og fengið að syngja fyrir Simon Coweell...Just because...its your birthday.
Takk Ásdís mín. Ég held að ég sleppi idolinu og haldi mig við doktorinn :-)
Innilega til hamingju, frábært að þú skemmtir þér vel. Lítur út fyrir að hafa verið svaka stuð. Audda varstu í karaoki, gengur ekki annað,hehe Back in the USSR, brilliant.
Takk Anna mín. Þetta var öðruvísi afmæli og þannig verða þau eftirminnilegust :-)
Skrifa ummæli
<< Home