mánudagur, febrúar 27, 2006

Stutt hopp til Osló

Nú þurfti að undirbúa ýmislegt því ég var aftur á útleið á föstudeginum. Ég þurfti aðallega að ganga frá efni fyrir ráðstefnuna í Edinborg, sem beið síðan á þriðjudeginum síðar. Það var fyrirhugaður aðalfundur hjá GoPro á mánudeginum og ég skrifaði nýjan formála að þekkingarskýrslunni og endurbætti hana. Svo voru það danstímar strax daginn eftir og danspartí hjá Óla og Hlíf á fimmtudagskvöldinu áður en farið var í flug á til Osló á föstudagsmorgninum. Nú var leiðinni heitið til Pat í Nittedal því ég hafði skrifað mig ofan í holu sem ég komst ekki upp úr. Fannst mér eina leiðin að senda þetta á Pat og Steve og biðja um hjálp. Steve var á leiðinni til Dubai og Pat var aðeins í Henley á meðan ég var í Antwerpen og Lúx svo Osló var eini möguleikinn. Pat og Unni ætluðu að fljúga til Bodö á laugardeginum til að vera þar alla vikuna svo þetta mátti varla tæpara standa að ná tali af karli. Það var því vaknað hálf sex einn morguninn enn og keyrt til Keflavíkur. Ég fékk uppfærslu og hafði það gott til Osló. Þegar þangað kom lenti ég í basli við að ná pening út á kortið mitt en síðan tók ég leigubíl út í Nittedal til þess að vinna tíma í stað þess að taka lestina inn í Osló og síðan aftur út í Nittedal.

Leigubílstjórinn var ungur pakistani, sem spjallaði og við reyndum í sameiningu að koma Ostliveien inn á leiðsögukerfið hans en það gekk brösulega í byrjun en síðan var allt í góðu. Það var rúmlega metersdjúpur snjór í Osló og allt á kafi í Nittedal. Þegar ég var rétt ókominn til Pats þá hringdi hann til að spyrja hvort ég ætlaði ekki örugglega að koma. Ég kom síðan á áfangastað stuttu seinna og við settumst strax niður til þess að fara yfir málin. Pat var frábær að vanda og sá strax hvað þyrfti að gera, Fyrst var að henda öllu sem ekki var RBV, Organizational Learning og Business Excellence inn í fyrsta kaflann. Þetta þýddi að allt sem ég hafði skrifað um þekkingarverðmæti fór þangað. Þá var nú ekki mikið eftir í lit reviewinu svo hann sagði mér einfaldlega að skrifa tiltekinn fjölda síða um hvert efni. Þannig myndi ég sjálfkrafa komast á réttan kjöl með skriftirnar. Hann sagði mig hafa ágætan ritstíl svo það væri ekki málið. Honum létti einnig að heyra hvernig ég vann með heimildir svo að ég væri ekki bara að klippa og líma. Síðan fór hann meira í aðferðafræðina og sagði mig þurfa að endurmeta rannsóknarlíkanið mitt og jafnvel einfalda það. Þessar viðræður okkar stóðu til að verða fimm en þá ákvað ég að halla mér fram að mat. Ég gisti hjá þeim hjónum og fór vel um mig þótt ekki færi mikið fyrir kyndingunni. Sængin var hlý og bjargaði öllu. Við áttum síðan ágæta kvöldstund við mat og spjall og síðan var gengið til hvílu.

Ég hafði pantað leigubíl kl. 9 og var keyrt út á völl þar sem vélin var sein. Þarna hitti ég Eggert nafna minn og frænda Guðmundsson sem var ásamt Árna Vil. og öðrum manni á leið frá sjávarútvegssýningu í Lilleström og síðan Álasundi. Við vorum einnig á höttunum eftir uppfærslu, sem fékkst greiðlega. Leiðinlegi parturinn var að uppgötva að vélin var á leið til Stokkhólms og síðan Reykjavíkur en það átti eftir að borga sig þegar kom að uppfærslunni. Ástæðan er sú að þegar vélin kom til Stokkhólms, þá áttum við fyrst að fara út en síðan var hætt við það. Þar sem við sátum í sætunum okkar kom flugfreyja, fyrst til nafna míns og sagði honum að ef hann ætlaði að fá mat á leiðinni heim, þá yrði hann að færa sig aftur í og ég fékk sömu skilaboð. Við vorum hins vegar svalir og sögðumst ekki þurfa neinn mat. Okkur væri meira virði að fá þægilegra sæti. Ekki það að við fengjum ekki að borða, heldur vantaði forréttinn og ekkert val um aðalrétt, en það skipti nákvæmlega engu máli. Ég komst loks heim og rétt náði að halla mér áður en við fórum á Argentínu að borða með Stefáni til þess að halda upp á Íslandsmetið hans. Við fengum mjög fínan mat og áttum góða stund saman. Ég var óttalega lúinn og sofnaði fljótt þegar ég kom heim.

1 Comments:

At mánudagur, 27 febrúar, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hvernig var danspartýið hjá óla og hlíf? hvað gerðuð þið?

flott að pat gat hjálpað þér og allt sé í lagi :)

Er argentína uppáhaldið hans stefáns? við förum nefnilega oftast þangað. Frábært að þið hélduð upp á þetta, enda f´rabær árangur h´ja honum

btw. skólinn er að fara í keilu á miðvikudaginn, ég á eftir að hugsa til stebba þá og örugglega gorta mig af honum ;)

Kveðja frá mér og Lumi,
Anna

 

Skrifa ummæli

<< Home