Karabíska hafið (2)
Nú var kominn siglingadagur og við áttum pantað far frá hótelinu í Puerto Rico til skips. Við sáum að allir útlendingarnir á hótelinu sem voru að fara á skipið voru með sérstaka límmiða á töskurnar, en þar sem við höfðum bara fengið pdf af ferðaskjölunum, þá áttum við bara lýsingu af því hvernig ætti að fylla miðann út. Hins vegar var tekið fram að við myndum fá límmiðana við höfnina. Í þeirri góðu trú afhentum við töskurnar í töskubílinn og héldum með rútunni niður að höfn. Þá kom hið sanna í ljós. Töskurnar komu ekki í okkar hendur aftur, heldur fóru þær beint í skipið og vissu ekkert í hvaða klefa þær áttu að fara. Þess vegna var það hnípinn hópur sem tékkaði sig inn, töskulaus, en hress að öðru leyti. Káetan okkar var fín og merkilegt hvað tókst að koma öllu fyrir. Það var byrjað á björgunaræfingu og þar sem við vorum ekki komin með neinn farangur, þá var það ágætis leið til að drepa tímann. Loks kom þó að því að töskur sem gengu af voru settar á ákveðinn stað og við fundum okkar töskur fljótt og vel.
Dagarnir liðu hratt. Á skipinu var hægt að borða út í eitt. Endalaus hlaðborð frá morgni til miðdags og svo þríréttað á kvöldin. Ég er ekki viss um að geta litið hlaðborð réttu auga eftir þetta :- ) Það var því neyðarúrræði að fara í ræktina á skipinu og hlaupa 8 km eða 5 mílur á hverjum degi sem tókst í 8 skipti svo ég náði tæpum 65 km sem ég tel ágætt en dugði ekki til að halda vigtinni því það hafði laumast á mig eitt kíló til viðbótar við þyngdina sem skráð var við brottför.
Það var stoppað nær daglega á einhverri eyjunni, sem allar litu svipað út. Sama glingrið til sölu á hafnarbakkanum og timburhjallarnir hvar sem litið var á leiðinni um svæðið. Ég fór ekki alltaf í land og stundum rétt í miðbæinn við höfnina þar sem skipið lá. Annars var dagskráin með eftirfarandi hætti:
Dagur 4 Sigling hefst 10.04. má. kl. 11:00 Brottför af hóteli kl. 20:00 Brottför frá San Juan með The Empress of the Seas kl.20:30 Kvöldmatur (alltaf sami tími í mat )
Dagur 5 Sigling 2 11.04. þri kl. 10:00 Í höfn í Philipsburg, St. Maarten. kl. 17:00 Brottför frá Philipsburg, St. Maarten.
Dagur 6 Sigling 3 12.04. mi. kl. 07:00 Í höfn á St. Johns, Antigua. kl. 17:00 Brottför frá St. Johns, Antigua.
Dagur 7 Sigling 4 13.04. fi. kl. 07:00 Í höfn á Basseterre, St. Kitts. kl. 18:00 Brottför frá Basseterre, St. Kitts.
Dagur 8 Sigling 5 14.04. fö. kl. 10:00 Í höfn á Castries, St. Lucia. kl. 18:00 Brottför frá Castries, St. Lucia.
Dagur 9 Sigling 6 15.04. lau. kl. 07:00 Í höfn á Bridgetown, Barbados. kl. 18:00 Brottför frá Bridgetown, Barbados.
Dagur 10 Sigling 7 16.04. su.* Á sjó
Dagur 11 Sigling 7 17.04. má. kl. 07:00 Í höfn á Margarita Island, Venezuela. kl. 03:00 Brottför frá Margarita Island, Venezuela.
Dagur 12 Sigling 8 18.04. þr. kl. 11:00 Í höfn í Willemstad, Curaco. kl. 18:00 Brottför frá Willemstad, Curaco.
Dagur 13 Sigling 9 19.04. mi. kl. 07:00 Í höfn í Oranjestad, Aruba. kl. 11:00 Brottför frá Oranjestad, Aruba.
Dagur 14 Sigling 10 20.04. fi. Á sjó
Dagur 15 Siglingu lokið 21.04. fö. kl. 07:00 Í höfn í San Juan, Puerto Rico.
Mér leist einna best á Aruba, enda er ég að skipuleggja ferð þangað fyrir fjölskylduna í ágúst, og mér leist síst á Margarita í Venesúela, því þar varð ég hálf hræddur og leist ekkert á það sem ég sá. Ég er nokkuð viss um að þetta land á í miklum vandræðum og ég myndi ekki vilja vera ferðamaður þarna lengur en sólarhring. Það sýndi sig að ABC eyjurnar (Aruba, Barbados og Curacao) eru hvað bestar enda hollenskar nýlendur. Þarna voru lífskjör hvað skást og notalegast að vera. Hinar voru ósköp ómerkilegar og lítið að sjá. Ég hefði ekkert verið sorrý að vera meira á sjó og minna á eyjunum, en svona eru túrarnir byggðir og ekkert um það að segja.
Ég myndi vilja öðruvísi siglingu næst. Ég er alveg heillaður af þessum ferðamáta þótt Sigrúnu finnist ómögulegt að vera með öllu þessu fólki í öllum þessum hávaða. Ég fer ekki ofan af því að það er frábært að geta farið að sofa í herberginu sínu og vaknað í nýju landi að morgni. Það er auðvitað mikil dagskrá á skipinu og ekki laust við að maður komi örþreyttur til baka en ef maður vill aksjónfrí, þá er þetta leiðin.


3 Comments:
Flott að þið skemmtuð ykkur vel :)
Hlakka til að fara til Aruba :)
Já, það verður gaman ef við náum að komast þangað í fríið saman.
Já, það verður gaman ef við náum að komast þangað í fríið saman.
Skrifa ummæli
<< Home