miðvikudagur, maí 03, 2006

Freyðandi “Löður"

Mér finnst ég hafa himinn höndum tekið. Þegar ég var í Halifax, þá fór ég í HMV til að skoða DVD og hvað haldið þið að ég hafi fundið?




eða Löður, eins og þetta heitir á okkar ylhýra máli. Það voru fagnaðarfundir að sjá aftur Jessicu, Burt, Mary, Chester, Corinne, Benson, Billy, Jody, Danny, Chuck og Bob og alla aðra sem tilheyra Tate og Campell fjölskyldunum. Ekki nóg með ég náði einni seríu, heldur náði ég fjórum. Ætli það séu nokkuð fleiri???

Það var hreint óborganlegt að sjá og heyra í Jessicu og ég grét úr hlátri þegar Burt gerði sig ósýnilegan. Hreint frábær skemmtun. Ég er búinn að horfa á fyrstu seríu og fyrsta diskinn af þremur í þeirri annarri. Ég hef reyndar þurft að stöðva glápið því ég er að falla á tíma með öll verkefnin sem biðu við komuna á föstudaginn, en ég hlakka til að eiga þetta til góða í öllum flugferðunum sem bíða mín í maí.

3 Comments:

At miðvikudagur, 03 maí, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

oh my, hvenær voru þessir þættir sýndir og um hvað eru þeir?

er þessi þáttur ein ástæðan fyrir að svona þættir voru kallaðir sápuóperur? ;)

hvaða fleiri þætti keyptirðu úti? þegar maður kemur á klakann getur maður tekið sjónvarpsmaraþon :P

Hafðu það gott, sakna ykkar
Bið að heilsa öllum heima

kv. Anna

 
At miðvikudagur, 03 maí, 2006, Blogger EggertC said...

Þeir heita Soap, því þeir gera grín að öllum sápuóperunum. Þeir voru sýndir í kringum 1980 svo þetta er vel fyrir þína tíð. Þú þarft að sjá þetta til að fatta grínið :-)

 
At fimmtudagur, 11 maí, 2006, Blogger Dis said...

Ég hlýt að vera orðin gömul því ég man eftir þessum þáttum. Ég hef þá verið 5 ára gömul. Ég skildi nú ekki húmorinn á þeim tíma, en mig minnir að ég hafi vitað hvenær ég átti að hlægja...þar sem þeir voru teknir upp ...with life studio audience.

 

Skrifa ummæli

<< Home