þriðjudagur, maí 09, 2006

Kaldhæðni og hroki

Þegar maður kennir í Háskóla Íslands fær maður einkunn frá nemendum í formi kennslukönnunar. Í þessari könnun svara nemendur spurningum um námskeiðið og kennarann og geta að auki komið með athugasemdir bæði góðar og slæmar. Könnunin er lögð fyrir í lok námskeiðs og getur kennarinn ekki séð einkunnina sína og athugasemdir fyrr en hann er búinn að skila einkunnum.

Ég hef svolítið gaman af þessu því þarna fær maður heldur betur að heyra það og nemendur mjög óvægnir í gagnrýni sinni. Ég kenni þekkingarstjórnun á meistarastigi og voru nemendur 17 og svöruðu 13 þeirra. Ég kom nokkuð vel út úr könnuninni að þessu sinni og ekki nema einn nemandi sem ekki kunni að meta kaldhæðni mína og hroka :-)

Dæmi um þetta eru ummæli eins nemanda sem sagði "Set spurningarmerki við hvort námskeiðið eigi rétt á sér þar sem efnið er blandast í aðra kúrsa. Þetta gæti þó orðið áhugaverðrur kúrs en það vantaði einhvern brodd í hann í þetta skiptið. Ég var ekki sannfærð í lok námskeiðs að kúrsinn ætti rétt á sér sem sér fag. Kennari hafði góða þekkingu á efninu og kom því á framfæri á sinn hrokafulla en engu að síður nokkuð vinsamlegan hátt," og hérna er hann að tala um "góðu" hlutina !!! Ekki veit ég hvort sami nemandi skrifaði eftirfarandi komment í "slæmu" hlutunum þegar hann segir " Kennari ágætur og nokkuð hress og skemmtilegur en mætti draga úr hrokanum. Ef kúrsinn á að standa sem sjálfstæður kúrs þá þarf að gera hann markvissari og poppa hann aðeins upp. "

Þetta þótt mér skondið, kommentið í restina, því ég hef námskeiðið mjög markvisst og kom meira að segja með erlendan gestafyrirlesara. Það verður ekki mikið poppaðra en það !!!

En það þýðir ekki bara að horfa á þennan eina nemanda sem var óánægður. Yfirleitt voru það 11 aðrir sem voru jákvæðir. Þannig sagði einn nemandi "Reynsla úr atvinnulífinu flettast vel saman við námsefnið, gefur meiri innsýn í efnið. Einnig er kennari mjög áhugasamur um efnið og nær fram góðri umræðu. Kemur þekkingu sinni ágætlega á framfæri. Með betri kennurum sem ég hef haft í MS náminu." Ekki amalegur vitnisburður það.

Ég skoraði í kringum 4,50 á skala 0-5 og miðað við aðra kennara er ég í 75% sem mér finnst nokkuð gott. Síðan er annar mælikvarði sem mér finnst áhugaverður en það er áhugi nemenda í upphafi námskeiðs sem var 3.,46 og síðan í lok námskeiðs 4,67 sem gefur góða vísbendingu um hvernig hefur tekist til við kennsluna. Það verður seint sem öllum er gert til hæfis en samt alltaf jafn gaman að sjá niðurstöðuna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home