Millikaflinn
Þegar ég kom frá Kína lenti ég í Kaupmannahöfn á Kastrup og setti þar lands og héraðsmet í að þeytast milli staða. Ég stóð í landganginum kl. 19:07 og náði að hlaupa og sækja töskuna mína, fara út í tékk-inn og fá að vita að miðinn minn til Glasgow væri ekki e-miði og ég þyrfti að fara í aðra afgreiðslu til þess að fá útgefinn miða og þá tékka mig inn og síðan hlaupa út í hlið, sem ég og náði kl. 19:36 en vélin átti að fara 19:45. Þetta hafðist!!!
Í Glasgow ætlaði ég að hafa það náðugt og sofnaði fljótt en vaknaði upp úr tvö um nóttina við einhvern þyt og dyn í lagnakerfi hússins. Þar sem ég var ennþá að glíma við tímamuninn náði ég ekkert að sofna aftur og var því meira en lítið úrillur þegar ég mætti í afgreiðsluna kl. 6 um morguninn til að heimta annað herbergi, en fór svo í ræktina og heita pottinn og morgunmat og var klár í að tala við Ásdísi kl. 8. Síðan átti ég fundi með Stephen eftir hádegi en kom aftur á hótelið, náði að halla mér í klukkutíma, mæta í móttöku hjá hótelinu þar sem verið var að kynna nýja herbergjamatseðil, svo ég fékk frían bjór og mat og gat kvartað yfir ævintýrum næturinnar. Loks endaði ég kvöldið við karrýát í boði Stephens. Ég svitnaði heldur betur !!!
Á miðvikudeginum tékkaði ég mig út um morguninn og Stephen sótti mig því við ætluðum með lest til Edinborgar. Það var rok og hellirigning. Í Edinborg hittum við hana Polly Purvis, sem er framkvæmdastjóri Skosku hugbúnaðarsamtakanna. Ég sagði henni frá PIP verkefninu og við ræddum möguleika á að koma einhverju svipuðu á koppinn í Skotlandi. Á eftir var hádegisverðarfundur samtakanna þar sem 14 fulltrúar hinna ýmsu UT fyrirtækja hittust og ræddu málin. Framsögumaður var Donald frá Gayle Software, en hann hafði ég hitt áður. Eftir fundinn fór ég út á Edinborgarflugvöll og komst að því að það var klukkutíma seinkun á vélinni minni til London svo það kom sér vel að hafa Priority kortið og komast inn á betri stofuna. Í London átti að bíða mín leigubíll, en þar var enginn. Ég hringdi í leigubílafyrirtækið og fékk að vita að ég ætti ekki bókun en ég var svo heppinn að það var bílstjóri frá þeim að sækja gistiprófessor til Henley þannig að ég fékk far með þessari ágætu konu, sem reyndist vera Arianne Antal, sem er einn af höfundum bókarinnar um lærdóm og þekkingu sem ég vitna mikið í við skriftirnar mínar. Hún spurði mig út í rannsóknina mína og var mjög indæl og áhugasöm. Það verður ekki amalegt að eiga hana að þegar ég fer lengra í náminu.
Í Henley var allt við það sama. Málstofan var fimmtudag og föstudag og ég var síðasti ræðumaður seinni daginn, þannig að ég lokaði þessu. Það var mjög gott því ég náði að jarðtengja nýju DBA meðlimina sem töluðu af mikilli bjartsýni og eigin reynslu sem ég barði hart niður með því að segja þeim söguna mína. Komst ég vel frá þessu og var gaman að hitta Lior og Godfried úr hópnum mínum. Þeirra kynningar voru mjög góðar og ljóst að við erum að ná þessu nokkuð vel. Ég fékk einnig góð viðbrögð á svarblöðum fyrir endurgjöf, sem notuð eru á þessum málstofum. Þar með var lokið heimsókninni til Henley og Godfried keyrði mig til Reading þar sem ég tók lest til Blackpool til að hitta Stefán og Sigrúnu og klára síðasta hlutann af Kínaferðinni.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home