Þótt þú vitir margt, þá ertu ekki dýralæknir
Það var árla morguns í Peking, eða nánar tiltekið kl. 6 þegar síminn minn hringdi. Ég slökkti venjulega á símanum á nóttinni þegar ég var í Kína út af tímamismuninum, en þar sem ég var að hlaða símann hafði ég gleymt að slökkva. Það er hress rödd í símanum sem segir: “Sæll” og ég svara “Hæ” á móti nokkuð snöggt en heyri strax að þetta er Hanna Stína og ég gat ekki ímyndað mér hvað hún vildi mér, en vonaði að það væri ekkert alvarlegt í gangi. Það var ekki því hún byrjaði strax að tala mikið um að einhver væri með sár á auga og hvort ég teldi að það væri eitthvað alvarlegt. Ég hváði náttúrulega við því ég skildi ekkert hvað hún var að tala um og hún spurði mig hvort ég hefði verið að vakna, sem ég jánkaði því það væri árla morguns í Kína. Þá heyrðist upphrópun og sambandið rofnaði. Stuttu seinna fékk ég eftirfarandi SMS:
“Jæja, þótt þú vitir margt þá ertu líklega ekki dýralæknir. Til hamingju með klára hlaupið! Við spjöllum saman við tækifæri”
Ég sendi þá stutt takk til baka og sofnaði og sendi því næst eftirfarandi SMS:
“Hæ, það var árla morguns hér í Peking þegar þú hringdir. Takk fyrir góðar óskir. Vona að allt verði í lagi með hestinn þó ég gæti ekki hjálpað”
Þá var svarað að bragði.
“Hesturinn bjargaðist. Meira hvað maður getur verið utan við sig, ég ætlaði sem sagt að tala við bónda í Húnavatnssýslu. Hafðu það gott”
Þar með vitum við það. Það er hægt að taka feil á mér og bónda í Húnavatnssýslu.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home