Í ham í Amsterdam
Síðan var komið að því að fara til Amsterdam, sem reyndist heldur betur ævintýri. Við Sigrún áttum bókað far með BMI. Þegar við komum út á völl var bið á því að við værum kölluð út í hlið. Síðan var rúmlega klukkutíma seinkun og við færð á annað hlið og þurftum að taka rútu út í vél. Þegar í flugvélina var komið, þá gat ég ekki annað en glott þegar ég horfði á sætismiðann minn merktan sætaröð 25 og það voru ekki nema 23 sætaraðir í flugvélinni!!! Þá upphófst mikil rekistefna í hálftíma sem endaði með því að hlaðfreyjurnar stormuðu um borð og buðu þeim farþegum sem væru einungis með handfarangur og vildu taka seinni vélina 100 pund í peningum. Þetta var greinilega kostaboð því hálf vélin stóð upp en það vantaði aðeins tólf sæti svo þetta leystist fljótt, en ef eitthvað bein hefði verið í nefinu á staffinu, þá hefði verið búið að finna út úr þessu áður en allir fóru út í vél, hvað þá að gera þetta ekki strax og komið var út í vél, heldur beðið endalaust eftir einhverju liði að koma frá flugstöðinni til þess að settla málið. Ekki mikið empowerment á þessum bænum!!!
Stressið var mikið á okkur Sigrúnu, því Godfried námsfélagi minn frá Henley og Inger kona hans voru búin að bóka okkur í mat á veitingahúsi sem lokaði eldhúsinu kl. 21:00. Ég sendi því SMS og Godfried hafði samband við veitingahúsið og þetta virtist ætla að verða í lagi því vélin lagði loksins af stað.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home