Áfram á ferð á flugi (taka 2)
Ég náði ekki að segja frá því að strax morguninn eftir Waters tónleikana fór ég til Bretlands, nánar tiltekið til Henley á Knowledge Management Forum, sem er haldið einu sinni á ári. Þetta var í þriðja sinn sem ég næ að sækja hluta af þessu. Reyndar missti ég af fyrsta hálfa deginum, því ég ætlaði ekki að missa af tónleikunum góðu, en það kom ekki svo að sök þótt Göran Roos hefði talað fyrir hádegi því hann var með workshop eftir hádegið og þá náði ég að tala betur við hann, svo og í kvöldverðinum. Það var hressandi að hitta Göran aftur, og ég hitti líka Dittu Kolbæk, sem er í PIP verkefninu fyrir hönd Oracle Danmark. Ég var aðeins kvíðinn að mæta í þetta sinnið því Christine van Winkelen, sem er stjórnandi ráðstefnunnar, er annar leiðbeinandinn sem ég lét reka frá mér í doktorsnáminu, svo ég gat búist við þvinguðu andrúmslofti. Ekki nóg með það, heldur var fyrsti maður sem ég hitti í fyrsta kaffihléinu hinn leiðbeinandinn sem ég lét fara sömu leið. Þetta var svolítið óþægilegt en ég lét það ekki á mig fá. Ég hitti líka Leif Edvinsson þarna og sagði hann mér að það væri mikil ásókn á ráðstefnu í París í lok júní, sem ég hafði reyndar bókað mig á.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home