MAGNA-ð ævintýri
Eins og svo margir þá hef ég hrifist af ævintýrum Íslendingsins í raunveruleikasjónvarpi skemmtanalífsins fyrir vestan haf. Er ekki laust við að mér finnist þetta minna á Öskubuskuþemað þótt ég eigi erfitt með að finna stjúpuna nema þá í hugarfjötrunum sem heimalandið heldur okkur í með því að halda að við eigum ekki möguleika á að meika það í útlandinu.
Ég hef fylgst með þessu frá byrjun og hefur þetta gefið fjölskyldunni eitthvað til þess að tala um. Við vorum svo heppin að vera á sama tímabelti og þættirnir þegar við vorum á Aruba. Við fórum á Taco Bell og keyptum teikát, hrúguðum okkur í rúmin tvö í herberginu okkar Sigrúnar og fylgdumst með og hvöttum okkar mann. Það var heldur betur stemming
Eftir að heim var komið úr fríinu er ég sestur að á daginn hér í Hamraborginni að vinna tölfræðina fyrir doktorsritgerðina mína. Það er ekki laust við að alvarlegur athyglisbrestur geri vart við sig annað slagið og leitar þá hugurinn á netið í leit að upplýsingum um þáttinn góða. Þetta náði svo hámarki þegar ég fann svokallaða "spoiler" þræði sem segja frá innihaldi þáttanna áður en þeir eru sýndir. Það halda nefnilega margir að þættirnir séu sýndir beint en það er öðru nær. Þriðjudagsþátturinn er tekinn upp á sunnudegi og miðvikudags-þátturinn er tekinn upp fyrri part dags en sýndur að kvöldi. Þeir sem eru viðstaddir upptökurnar eru duglegir að kjafta frá og þrátt fyrir hetjulegar tilraunir opinberu vefsíðna þáttarins til að þagga þetta niður þá finnur umræðan sér farveg um önnur lén. Þetta á ekki hvað síst við um útilokunarþáttinn því allir vilja vita hver fór undir öxina illræmdu.
Fyrir þá sem vilja feta þessar slóðir þá bendi ég á eftirfarandi:
www.rockstar.msn.com
www.supernovafans.com
www.6767.com
www.rockband.com
www.stormlarge.com
www.youtube.com


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home