sunnudagur, september 10, 2006

Frábær frænka

Þar sem ég sit og horfi í hyldýpi tölfræðinnar, reyni ég að leita að stráum til að halda í til að sogast ekki í algleymið. Mér finnst tölfræðin eins og ég sé að læra tungumál þar sem ég les mig til um framburðinn en skil ekki málið :-) En ég fann ekki aðeins strá til að halda í, heldur fullkomið björgunarfar sem ræður við hvaða hluta tölfræðinnar sem er.

Málið er að þar sem ég er haltur, varð ég að sleppa baddanum á fimmtudaginn og fór í staðinn á kynningu hjá IMG, sem núna heitir Capacent, í boði Balanced Scorecard hópsins hjá Stjórnvísi. Gugga frænka er að vinna þarna og leit við á kynninguna. Við tókum spjall saman og þar sem hún náði að klára doktorinn sinn fyrir nokkrum árum eftir að hafa verið í þessu með hléum, þá varð mér skyndilega ljóst að hún vinnur auðvitað við tölfræðirannsóknir hjá IMG. Hún tók erindi mínu afar vel eins og var hennar von og vísa. Ég er því ekki alveg eins strekktur yfir þessu öllu þar sem ég hef einhvern til að tala við sem skilur málið(n).

BTW (By The Way) ef þið áttið ykkur ekki þá er Gugga frænka, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, frá Skógum undir Eyjafjöllum. Pabbi hennar var frændi okkar og þar bjó líka önnur frænka okkar, Gunna á Skógum, ásamt manni sínum sem var skólastjóri þarna. Ég var nokkur sumur í heimsókn á Skógum ásamt mömmu minni og varð þetta fólk mér mjög kært. Ég hafði ekki mikið af Guggu að segja fyrr en ég hitti þau í dansinum fyrir mörgum árum og höfum við náð að spjalla saman af og til í gegnum árin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home