sunnudagur, september 10, 2006

Kaaber hundrað ára

Það voru blendnar tilfinningar að fara í móttöku hjá O. Johnson og Kaaber í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Einn hluti þriðju kynslóðar meirihlutaeigenda virðist vera að blása lífi í fyrirtækið eftir að annar hluti sömu kynslóðar glataði nær öllu eigið fé þess. Þetta kom ekki við mig því ég seldi hlutinn minn 1986 þegar við Sigrún byggðum Kaldaselið. Það var greinilegt að hremmingar fyrirtækisins hafa sett sitt mark á fólk og mátti ráða það á þeim sem voru og sérstaklega þeim sem voru ekki.

Annars hefur Kaaber, eða ÓJK, verið samofið fjölskyldunni minn flest þessi hundrað ár. Afi minn, Arent Claessen, varð meðeigandi að fyrirtækinu snemma á síðustu öld og starfaði þar til dauðadags árið 1968. Það sama á við um pabba minn, sem vann í fyrirtækinu allt sitt líf og var framkvæmdastjóri kaffibrennslunnar þegar hann lést árið 1970. Þá tóku við eftirlaunagreiðslur frá fyrirtækinu og má segja að fyrirtækið hafi þannig kostað uppvöxt minn því mamma fékk eftirlaun þannig að hún þurfti ekki að vinna og við höfðum það ágætt.

Ég er ekki viss um að þið vitið að ég vann þarna í rúmt ár 1977-1978, sumarstarf og hlutastarf með skóla. Mér fannst vistin þarna ekki góð. Ég fann mig aldrei þarna og var einhvern veginn aldrei samþykktur í samfélagið sem var þarna. Það bætti ekki úr skák að ég var í sérvörudeildinni sem var að mörgu leyti litin hornauga. Þetta reyndist samt mikil blessun að vinna ekki við "fjölskyldufyrirtækið" því annars hefði ég aldrei stofnað fyrirtækin mín og síðan misst vinnuna þegar þrengdi að fyrirtækinu. Að auki hefði þá ekki selt hlutabréfin mín og þannig þurft að horfa á þau verða að engu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home