sunnudagur, september 10, 2006

Haltur

Það er ekki nóg með að reglunum hafi verið breytt í badminton heldur er ég líka búinn að vera haltur alla vikuna eftir tímann. Ég fann ekkert sérstaklega fyrir tímanum, annað en að ég var með bólgur eftir helgarhlaupin. Síðan í lok þriðjudagsin var ég kominn með þvílíka verki í tábergið að það var eins og ein táin væri brotin. Ég dröslaðist á æfingu á miðvikudeginum vegna þess að það var SPA dagur og lyfti í stað þess að hlaupa. Pétur þjálfari sagði mér að kæla fótinn eins og ég gæti. Þess vegna fór ég í Lyfju og keypti gelkælipoka og er búinn að vera nota þá síðan, mest á mið, fimm og föstudag.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home