sunnudagur, september 17, 2006

Misnotkun á úrum

Ég var í Glasgow á þriðjudaginn á stjórnarfundi hjá EJS UK. Við Gústi flugum út um morguninn og var ég aðeins þreyttur því ég vaknaði hálf þrjú um nóttina við að fólkið á neðri hæðinni setti útvarpið í gang og mér fannst ekki taka því að sofna aftur því ég þurfti að vakna hálf fimm.

Ég fékk uppfærsluna svo það fór vel um okkur félagana. Ég byrjaði að lesa blöðin og þá sá ég frábært dæmi um hvað merking orða fer eftir því hvernig maður les. Ég leit snöggt á eina blaðsíðuna í Fréttablaðinu og sá frétt sem mér fannst fáranleg. Eins og ég las þetta var eins og Íranir væru að stunda nauðgun á úrum en þegar ég las þetta í samhengi þá kom í ljós að þeir voru að auðga úraníum. Fyrirsögnin var sem sagt "Íranir stunda úranauðgun!!!"

Þetta sannar að ef maður er nógu þreyttur þá getur maður lesið hvað sem er.

1 Comments:

At fimmtudagur, 21 september, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hehehe... brilliant

Gaman ad sja tig blogga aftur :)

kv. Anna C

 

Skrifa ummæli

<< Home