Gaman í Zurich
Við Sigrún vorum að koma frá Zurich þar sem við vorum um helgina í boði Landsbankans. Við fórum á föstudag og komum í dag, sunnudag. Það var mjög skemmtileg mótttaka á stað sem var endalaus blóm og gróður eins og Eden í Hveragerði. Síðan var gala dinner á laugardagskvöldinu í tannhjólaverksmiðju sem hafði farið á hausinn. Mjög flott hjá Landsbankafólki og gaman að vita hvert verður boðið á næsta ári. Annars spillti mjög fyrir Sigrúnu að hún var með bullandi flensu og rétt komst í boðin og lá í rúminu þess á milli. Vonandi hressist hún fljótt.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home