þriðjudagur, september 26, 2006

Sjoppað og droppað

Eins og Ásdís getur staðfest var nóg af búðum í Mall of America til að skoða í. Ég keypti mér iPOD því að minn eyðilagðist á Aruba. Ég keypti ýmislegt smálegt og skoðaði mig um og fékk mér enn eina pizzusneiðina og síðan var haldið af stað til Muscoda.

Þetta var eins og í bíómynd að keyra þarna niðureftir. Ég keyrði í fjóra og hálfan tíma og horfði á landslagið sem var endalausir akrar og skógar og hlustaði á kjarnarokkstöð í útvarpinu og passaði mig að hlusta á röddina í Neverlostinu, sem þurfti ekki mikið að tala eftir að ég var kominn á þjóðveginn.

Það var ekið í gegnum hvern smábæinn á fætur öðrum eftir að aðalþjóðveginum lauk og kom mér á óvart hversu margir þeirra áttu sér norskan uppruna eins og skiltin á húsveggnum báru með sér. Velkommen til Canon Valley, Kom igjen !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home