Kominn til Minneapolis
Þá er ég kominn í þetta stóra og fína herbergi á AmeriSuites hótelinu hér í St. Paul, rétt hjá Mall of America, sem hún Ásdís þekkir svo vel. Ferðalagið gekk vel því ég hafði uppfært mig á Saga á punktum svo ég var í góðum málum á leiðinni. Hins vegar er ég hundfúll yfir því að ég er með gigtarkast í vinstra fæti svo það er ekki gott að ganga. Þurfti að bíða aðeins eftir bílaleigubílnum því það var eitthvað vesen með kortið mitt en það leystist allt. Ég fór í Mollið áðan og fékk mér pizzusneið og keypti mér kók til að hafa á herberginu.
Svo er það verslun á morgun og keyrsla niður til Wisconsin, nánar tiltekið The House on the Rock.


3 Comments:
ohhh amerisk pizzusneid og kok... hljomar aedislega....
cool.. mall of america, tarf ad plata asdisi ad taka mig e-htimann med, hef aldrei farid
Skemmtu ter vel i rock daeminu :)
kv. Anna C
Ekki tapa þér í búðunum
Versladi ekki mikid. Er nuna a Golf Resort vid Wisconsin ana og er ad fara ad skoda sofn a eftir. Skil vel ad thu hafir tynt ther i Mall of America.
Skrifa ummæli
<< Home