föstudagur, september 29, 2006

Enn eitt Goð í safnið


Ég var að koma frá 100 ára afmælishátíð Símans. Þarna voru forsetinn, ráðherrar, alþingismenn og ég ásamt fjölda annarra gesta. Það voru tveir gestafyrirlesarar, báðir Ameríkumenn, sá fyrri talaði um future trends og sá seinni öllu frægari en hinn. Þetta var Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York. Þar sem ég hef mikið notað dæmi úr bókinni hans í fyrirlestrum var frábært að sjá og heyra Goðið. Hinn kaninn heitir Zello og var frábær í allri framsetningu á efninu og var virkilega skemmtilegur.

Á eftir Borgarleikhúsinu var afmælisveisla í Laugardalshöll með veitingum, tónlistarflutningi og miklum fjölda manns. Eftir að hafa troðið í mig snittum og skolað niður hellingi af kók og talað við fjölda manns var rétt að koma sér heim og byrja að pakka niður fyrir maraþonið um helgina í Osló.

2 Comments:

At mánudagur, 02 október, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

ohhh hvad eg hefdi viljad vera tarna. Hlusta a mann eins og giuliani og svaka veisla med fjolda fraegra manna... hljomar alls ekki illa.

 
At mánudagur, 02 október, 2006, Blogger EggertC said...

Já, þetta var mjög áhugavert og sá sem talaði á undan Giuiliani var ekki síðri. Hann var fyndinn og með mjög skemmtilega punkta.

 

Skrifa ummæli

<< Home