Júlíus Cesar undir berum himni í Wisconsin

Það var ótrúlega súrrealískt að vera í bústaðnum við Wisconsin ána og keyra í 20 mínútur að golfvellinum sem ég gisti aðra nóttina og þar rétt hjá er APT, American Player Theater. Þetta er útileikhús uppi í fjallshlíð og þarf að ganga smá spöl upp að salnum. Leikritið sem var sýnt þetta kvöld var Júlíus Cesar eftir Shakespere. Ég er nú ekki mikill menningarviti en þetta var nokkuð stórkostleg upplífun að horfa á þetta verk undir berum Wisconsin himninum. Við vorum tveir á ferð þetta kvöld, ég og Steve og horfðum á þetta meistarastykki Shakespere. Það var samt tvennt sem vakti kátínu mína, að leikarinn sem lék Cesar leit út eins og Kapteinn Kirk úr Star Trek, og ég gat fengið bjór í flösku í hléinu, nefnilega Spotted Cow


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home