miðvikudagur, september 27, 2006

Borðað í Hvíta Húsinu

Eftir að málstofuna á sunnudeginum fóru flestir af stað heim á leið nema ég og Steve. Það var tveggja tíma hlé þangað til við ætluðum að fara að borða á veitingahúsi með Pat. Steve fór að finna golfvöll og ég settist út á pall með bjór og tölvuna og gerði hið ótrúlega, ég fór að factor analysera breyturnar í könnuninni minni, nokkuð sem ég hafði aldrei gert áður og hefði ekki komið til hugar að gera sjálfur. Gekk nokkuð vel auk þess sem ég náði að galdra fram 6 hypothesur sem vantaði alltaf í ritgerðina, nokkuð sem fæddist í málstofuumræðunni. Gott mál.

Þegar Steve kom til baka fórum við með Pat á veitingastaðinn Pebbles, sem var eitthvað sem var alltaf gert. Pebbles var ekki með veitingasalinn opinn svo við fórum í Hvíta Húsið, sem var lítið hótel, sem hafði látið byggja hvelfingu ofan á staðinn sem var eftirlíking Hvíta Húsinu í Washington.
Dálítið halló, ef ég á að hafa skoðun á þessu. Þarna var herbergi með málverkum af nýjustu forsetunum og síðan veitingasalur sem var ekki fínni en það að fótboltaleikur dagsins var á risaskjá þar inni. Ég pantaði mér steik og bjór. Ég var ekki í vandræðum með að velja bjórtegund þegar ég sá listann. Spotted Cow bjór er málið !!!!!

2 Comments:

At mánudagur, 02 október, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hehehe, drinking spotted cow in the white house....

Hljomar brilliant!!!

kv. Anna

 
At mánudagur, 02 október, 2006, Blogger EggertC said...

Já, þetta var alveg bráðfyndið allt saman og hljómar fáranlega.

 

Skrifa ummæli

<< Home