Frank Lloyd Wright Visitor Center
Á horninu við þjóðveginn þar sem ég beygði að House on the Rock Resort var Frank Lloyd Wright Visitor Center til heiðurs þessum dáða arkitekt þeirra Ameríkumanna. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki með þetta á hreinu en ákvað að fara þarna og tikka í boxið (been there, done that).

Ég fór líka í klukkutíma ferð sem kallaðist Hillside tour, en þar var farið í arkitektaskóla sem kenndur er við kappann og er byggingin hans hönnun, upphaflega teiknað sem heimavistarskóli fyrir tvær frænkur hans. Ég dáðist að þessu öllu saman og keypti litla bók um kappann svo ég geti rætt þetta af fimi ef málefnið ber á góma


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home