miðvikudagur, september 27, 2006

Mögnuð Málstofa - Árs bloggafmæli

Á laugardaginn og hálfan sunnudag var málstofan í bústaðnum hans Pat við Visconsin ána. Ég fór þarna í fyrra og varð tilefni þess að ég byrjaði að blogga og því á ég nokkurs konar árs bloggafmæli. Málstofan á laugardeginum byrjaði með Eyþóri og fylgdi Richard Searle á eftir og var heldur betur háfleygur. Hann fjallaði um Dialectics Theory, sem ég skil ekki ennþá hvað er. Þetta var um breytingar og hvenær þær gerast. Þetta var mikil rökfræðiæfing og ég heimskari en nokkur ljóska við að hlusta á þetta. En til allrar blessunar var ég ekki einn um þessar tilfinningu. Gunnar Holt var á svipuðum slóðum og ég, nema hann er miklu framar í tölfræðinni en á eftir að leggja fyrir aðra könnunina af tveimur sem hann ætlar að vera með í ritgerðinni sinni. Loks var Steve Tanner með innlegg um varnarferilinn, Vivuna, þegar ritgerðin er varin. Mjög fróðlegt og höfðaði sterkt til þeirra sem eru nálægt því að klára (lesist ég). Ég var síðan með mitt innlegg á sunnudagsmorgninum og reyndist þetta mikil blessun því ég fékk góð viðbrögð við þeirri vinnu sem ég (og Ásdís) höfðum lagt í tölfræðina og síðan fékk ég mjög ákveðnar vísbendingar um það hvernig ég ætti að klára þetta svo nú er ég heldur betur kominn á endasprettinn. Hreint frábært tilfinning.

4 Comments:

At miðvikudagur, 27 september, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta hefur verið ferð hinn besta, og verandi á endasprettinum þá vona ég að þú náir að súpa kálið, þó persónulega mæli ég með því að þú tyggir það frekar og það fast.

 
At miðvikudagur, 27 september, 2006, Blogger EggertC said...

Heldur betur, en nú þarf að fókusa á endamarkið, tuggið kál, fullkláruð ritgerð og fumlaus vörn !!!

 
At mánudagur, 02 október, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju med bloggafmaelid

Kvedja fra tolvuherbergi skolans,
Anna

 
At mánudagur, 02 október, 2006, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín.

Leitt að tölvan þín skuli vera að stríða þér, en þetta kemst í lag þegar Stefán kemur í heimsókn til þín.

 

Skrifa ummæli

<< Home