House on the Rock - Really rocks

Að loknum arkitektatúrnum keyrði ég sem leið lá í House on the Rock. Þetta var hreint ótrúlegur staður. Ég var tæpa þrjá tíma að labba þarna í gegn. Þetta er hús byggt við og í klett og eru endalausir ranghalar og stórar skemmur með alls konar dóti, og ég meina alls konar dóti. Þarna var stærsta safn í heimi af sjálfspilandi hljóðfærum og meira að segja 40 manna hljómsveit (brúður) sem spilaði. Þarna var RISA-stór hvalskjaftur og sporður og kolkrabbi sem táknaði hafþema og endalausir minjagripir og módel tengd hafinu. Þarna var eina stærsta hringekja í heimi með 1200 verum, engum hestum. Hestarnir voru í hundraðatali á veggnum. Þarna voru stórir eirkatlar

og spennustöðvar, gamlir hestvagnar og skrautvagnar. Það var bara bókstaflega allur fjandinn þarna. Síðan var eitt herbergið byggt út úr húsinu í spíss þannig að það virtist endalaust, enda kalla the infinite room. Ég álpaðist þarna út og fattaði ekki fyrr en í seinna lagi að þetta var allt gler og óskaplega langt til jarðar og ég lofthræddari en allt sem lofthrætt er. Ég var við það að frjósa þegar ég náði að horfa til himins, blístra og ganga hægt aftur á bak. Sem sagt mögnuð skemmtun að sjá þetta og alveg hreint klikkað að finna eitthvað þessu líkt í þessum afdal.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home