Enn koma Goð

Var í dag á fyrirlestri hjá Michael E. Porter í Háskólabíói. Þetta er nú bara einn helsti fræðimaður á sviði stefnumótunar og á margar af þeim kenningum og módelum sem lögð eru til grundvallar skilningi og útskýringu á samkeppnisforskoti og samkeppnishæfi. Alltaf þegar maður skrifar um samkeppnisforskot vitnar maður í Porter (1985) og maður talar um virðiskeðjuna og fimm samkeppniskraftana. Maður talar um Portersdemantinn og mér fannst þegar ég var að læra í Danmörku að menn töluðu Porterísku. Hvað um það, mér fannst kallinn áheyrilegur og merkilegt hvað hann hafði mikinn áhuga á efni sem hann er búinn að tala um í 25 ár. Ég er búinn að tikka í eitt box í viðbót :-)


5 Comments:
Flott að geta tikkað við þetta
Ég var nú nánast búinn að gera mig ferðbúinn að fara af stað til að vera snemma í því og sjá karlræfilinn í Háskólabíó. Hélt nú svona líka að Capacent væri að bjóða uppá þetta "What is strategy", ókeypis. Ég var rétt ólagður af stað þegar ég tek eftir í Morgunnblaðinu að ég skal vinsamlegast helst borga 15.000 kall fyrir þennan klukkutíma fyrirlestur sem var nafni greinar sem ég hef lesið þúsund sinnum. Ákvað ég því hálfsneyptur að þetta box yrði tikkað þegar ég væri á þeim stað í lífinu að ég hefði efni á eyða 15.000 kalli í það að tikka í klukkutíma box.
Já, það er gott að geta sagt að maður hafi séð hann í eigin persónu, þó ekki væri annað.
Ég skil þig vel Helgi, að hvorki vilja né geta borgað 15.000. fyrir þennan klukkutíma. Á þessum punkti í ævinni er það ekki spurning. Hjá mér var það spurning um vilja og því fór ég þarna í boði Landsbanka Íslands :-)
geðveikt.. tu ert barasta ad hitta oll godin tin, tad vantar bara pink floydarana.
kveðja fra Vin,
Anna
Ég náði að sjá tvo þeirra þegar Waters kom í sumar því Mason var með honum. Það er alltént nokkuð.
Skrifa ummæli
<< Home